amanap

Nytjapunktar í mannlegum samskiptum.

Ég bý að feitri samvisku sem ég hef með í öllum ráðagerðum mínum. Ég spjalla einnig við hana frá morgni til kvölds. Ég til allrar guðs lukku lærði það áður en ég yfirgaf akademíuna að þróa með mér hæfileikann til að ferðast aðeins út úr eigin skinni og horfa á málin með augum þeirra er ég á við að etja. Óneitanlega þrátt fyrir talsverðan þroska kemur mér til hugar allskyns vitleysa sem að gæti auðveldlega komið mér um koll, en þökk sé samvisku minni átta ég mig yfirleitt á því og get síað út það sem heyrir undir fucking vitleysu. Já, ég lærði margt nytsamlegt í akademíunni. Á þeim tíma sem ég var að feta mínu fyrstu spor var til siðs að gelta “Haltu kjafti og haltu áfram.” Eins grátbrosleg og þetta slagorð er, þá hefur það verið mér til gagns í göngu minni. Ég persónulega get fundið þúsund ástæður til að gefa skít í þetta allt saman, en einmitt við þessháttar kringumstæður hefur þetta ömurlega slagorð gert það að verkum að ég hef ekki látið deigan síga.

Í illa skeint rassgat með ykkur öll!

soma

Einu sinni sem oftar varð mér það á að reyna fyrir mér í mannlegum samskiptum. Þolandinn að þessu sinni var alveg ágætis kona sem vinnur á bókasafninu. Ég hitti hana fyrir í hádeginu og tók upp létt hjal við hana. Einhverra hluta vegna barst hjalið að auglýsingum umferðarstofu og ég gat ekki á mér setið og sagði blessaðri konunni að þetta væru frá mínum bæjardyrum séð alveg bráðfyndnar auglýsingar. Ég lét mér ekki nægja að viðra þessa skoðun mína heldur lýsti ég því á myndrænan hátt þegar fulli frændinn kastar krakkanum út í vegg eftir að hafa sveiflað honum hring eftir hring. Að því búnu hló ég hysterískum hlátri og titraði af ánægju.
Það er skemmst frá því að segja að þessi blessaða kona hefur ekki á mig yrt síðan.

Cursive og Yeah, Yeah, Yeahs er tónlist sem ég mæli sérstaklega með. Einnig vill ég benda á útvarpsstöðina SomaFM sem er starfrækt í kjallara í California. Stöðin skiptist í 7 rásir. Hún er rekin að öllu með frjálsum framlögum og spilar alls ekki commercial, main-stream viðbjóð.

videodrome

Í þau örfáu skipti sem að undirritaður hefur verið við kvenmann kenndur hafa munnleg samskipti verið iðkuð. Ég á þá við samskipti af þeim toga sem framkvæmd eru með því að annar aðilinn hvetur til aukinna kynna með því að opna fyrir einhverja umræðu. Umræðan þarf í raun og veru ekki að vera hástemmd eða vísindaleg að neinu leiti. Viðfangsefnið gæti verið svo til hvað sem er, svona svo lengi sem að annar aðilinn kemur ekki út þannig að honum finnist hann vera feitari eftir umræðuna heldur en fyrir hana. Það er þó hægt að koma í veg fyrir það að maður þurfi nokkurn tímann að kynnast maka sínum eða kærustu, til þess var sjónvarpið fundið upp. Hvers vegna kemur mér þetta í hug á þessari líka örlagastundu. Það er kannski vegna þess að mér er það í fersku minni hversu skelfileg þessi samskipti geta verið.
Ég er þessvegna uppfullur af einlægu þakklæti yfir því að í nútímanum er hægt að skunda sér út í videoleigu og ná sér í eina vídeóspólu sem að bregst ekki hlutverki sínu að viðhalda kærleiksríku og lostafullu sambandi. Guð sé oss næstur ef að fólk færi í raun og veru að kynnast hvoru öðru, það væri hrein hörmung.
Þetta minnir mig svo einnig á að einu sinni setti ég inn auglýsingu á einkamal.is þar sem ég auglýsti eftir þroskaðri konu sem hefði séð “Angel Heart” minnst 30 sinnum. Ég fékk nú ekki mikil viðbrögð við þeirri auglýsingu, ég kannski ekki þótt nógu “Jóhannes á fóðurbílnum hress” eða ekki nógu mikil “Sigtún auglýsing týpa.”

Calling Memphis

Við hér er látum okkur málið varða heimtum fréttir frá Memphis. Þannig er mál með vexti að fyrir rúmum mánuði flutti góðvinur minn hann Rúnar J. frá Alaskaskaska til Elvis byggðarinnar Memphis. Enginn hérlendis hefur hinsvegar orðið hans var, en ég veit þó að hann á það til að kíkja hér inn á litla sæta vefinn minn. RÚNAR!!! Ef þú sérð þennan veflók láttu okkur endilega vita hvernig lífið leikur þig á þessum nýja samastað.

Dahlia

Hér er svo fallegt blóm sem heitir dalía. Þess ber að geta að undirritaður ólst upp í dalíuhafi dauðans fyrir sunnan og norðan skítalæk. Pabbi sem var mikill áhugamaður um allskyns blómarækt sá til þess að við krakkarnir værum umkringd blómum og trjám í fallegasta garðinum í allri Löngubrekkunni.
Enn þann daginn í dag dreymir mig að ég sé kominn á Löngubrekkuna í fallega dalíugarðinn hans pabba.

Italiano

Ég hef hafist handa við að læra ítölsku. Þessum áhuga mínum á ég alfarið henni Maríu minni T. að þakka. Ég reyndar ákvað að það væri ekki vitlaust að brjóta upp líferni mitt, sem er að megninu til haldið út fyrir framan tölvuskjá. Ég verð að viðurkenna að ég er alveg hræðilegur í þessari mállýsku, þó svo að ég sé mjög svo hrifinn af henni. Þetta minnir mig svolítið á þegar ég var að læra hebresku, sem gekk alveg ferlega. Þess ber þó að geta að ég er ekki neinn maður í að diskútera torann á hebresku. Ég hinsvegar bölva mig í gegnum nánast hvað sem er. Ég þarf einungis að bíta það í mig að gera hlutina, og er það yfirleitt trygging fyrir því að árangur af hljótist.
Ég hef komist að því að þó svo að maður komi fyrir sjónir sem fucking fáviti, þá er það að jafnaði mun betra heldur en að láta það eiga sig að takast á við það sem að maður kann að hafa áhuga á. Ég oftar en ekki þarf að beita mig fortölum til að framkvæma hluti sem jafnvel leika í höndunum á hinum meðalmanni. Oft langar mig bara ekkert til að standa í þessu. Það að lifa í lyktarlausum stafrænum heimi er oft mun þægilegri kostur heldur en að stíga það vafasama skref að fara fram úr á morgnanna.

stallman

Þessi fallegi maður er hér í þeim tilgangi að ylja þeim sem láta sig málið varða um aumar hjartaræturnar. Djöfulgangurinn í skrifum mínum hefur verið lauslega nefndur við mig. Þetta þykir síður svo gott til afspurnar og þykir mér full ástæða til að verja mannorð mitt fyrir akademíunni. Í flestum tilfellum sé ég mér engan sérstakan hag í að sjá að mér og leiðrétta villur vegar míns. Það er þó í sumum tilfellum þannig háttað að ekki verður hjá því komist. Ég af þessari ástæðu birti hér mynd af goðinu mínu honum Richard Stallman, sem ég fékk að sjá halda fyrirlestur í kennaraháskólanum fyrr í þessum örlagamánuði. Það er mín von að hans hugsjón og ásjóna smiti ásjónu þessa mánaðar. Ég er því guðs lifandi feginn að Janúar er að baki, hann var óneitanlega viðbjóðslegur.