fallacius pluralibus

Mikill urmull er til af sjúkdómum sem hrjá aumt mannkynið. Sjúkdómar bera torskilin heiti sem einungis er á færi þartil útbúinna fræðimanna að skilja. Þekkjast þeir oftar en ekki á akademískri ólund sem er þrálátur fylgifiskur þess að vera langskólagenginn.

Í lífsins ólgusjó er manninum nauðsyn að kunna nafn á þeirri óhamingju sem hrjáir hann. Það er engum blöðum um það að fletta að eitthvað amar að okkur öllum. Þar fyrirfinnast engar undantekningar þori ég að fullyrða. Það er ólíklegt að manneskja þurfi ekki einhvern tímann á lífsleiðinni að takast á við einhvern ára sem veldur viðkomandi ásamt öllum sem til hans þekkja einhverjum óþægindinum ásamt vel útilátnum skammti af helberum leiðindum.
Það er við þessar aðstæður sem margir gleyma sér gersamlega í þeirri sjúkdómsgreiningu sem þeim hefur verið útrétt af fyrrnefndum uppáklæddum og langskólagengnum. Fólk yfir höfuð er sjúkdómsgreiningunni fegið og margir, þó ekki allir, lifa sig af mikilli ástríðu inn í hlutverk sjúklingsins. “Já, ástæðan fyrir því að mér hefur ætíð liðið bölvanlega er vegna þess að ég er með vélindabakflæði!” gæti einhver tilkynnt digurbarkalega í fjölskylduboði eða á viðskiptafundi. Í þessu tilfelli er búið að koma nafni yfir ófögnuðinn og þrátt fyrir að ekkert verði kannski að gert, líður sjúklingnum mun betur með að geta kallað sig sjúkling. “Hann er svona vélindabakflæðismanngerð!”, gæti einhver sagt um viðkomandi, eða “Hann er með persónuleika gallsteinasjúklings!” Þarna er sjúklingurinn orðinn sjúkdómurinn. Innhald hans er sjúkdómur og allt lífið fer í að vera sjúklingur.

Þess ber að geta að þessi veflókur er ekki skrifaður með þá í huga sem berjast fyrir lífi sínu vegna veikinda.

Ég þekki þetta af eigin raun, þar sem ég undirritaður var sjúkdómsgreindur af uppástríluðum sérfræðingum sem ætti helst að banna öll mannleg samskipti. Ég fór í kjölfarið á því að vera orðinn yfirlýstur sjúklingur að haga mér algerlega samkvæmt þeim sjúkdómi sem greindist með. Ég fór að klæða mig í samræmi við sjúkdómsgreininguna. Sækja viðeigandi kaffihús. Umgangast fólk sem þótti við hæfi . Hlusta á músik sem passaði best við, o.s.frv.
Ég talaði um sjúkdóminn minn látlaust og hafði hann með mér í farteskinu hvert sem ég fór, öllum til óbærilegra leiðinda. Svo kom á daginn að ég var bara ekki með einn né neinn sjúkdóm, heldur var ég bara að kljást við lífið eins og það birtist fólki, með tilheyrandi skini og skúrum.
Það má segja að ég hafi verið eilítið umkomulaus þegar ég komst að þessu. Hver er ég eiginlega ef ég hef ekki einhverjum sjúkdómi um að kenna þegar miður fer?
Er ég kannski maðurinn hennar Jónínu hans Jóns?

3 thoughts on “fallacius pluralibus”

  1. hvað er þetta, vitanlega ertu með banvænan sjúkdóm sem dregur þig til geðveiki eða dauða nema hvorutveggja sé ef ekkert er að gert …
    um leið og þú hættir að hafa þetta hugfast í öllum þínum athöfnum svo ég tali nú ekki um að sækja viðeigandi meðul við þessu hjá samtökum iðnaðarins er þér dauðvinn vissulega vís!

  2. Hugmyndir fólks um hitt og þetta _útskýra_ heiminn. Hugmyndir fólks um hitt og þetta _stjórna EKKI_ heiminum.

    Að vera haldinn þeirri fáránlegu hugmynd að allar konur væru brjálaðar í mig; að þær þrái mig svo heitt að þær séu tilbúnar að henda lífi sínu fyrir róða fyrir það eitt að ég lúlli hjá þeim eina nótt DOES NOT MAKE IT SO.

    Ég er haldinn ýmsum kvillum. T.d. er ég haldinn ofnæmi fyrir hinum og þessum efnum og ber þar helst að nefna þvottaefni. Þetta algenga efni hefur gert það að verkum að ég steypist út í bólum sem svo grefur í og eiga sumar það til að verða á stærð við 50-aur.

    Lausnin við þessu er í mínu tilfelli að nota annað þvottaefni. Þetta segi ég fólki sem bryddar upp á því við mig að það fái útbrot. Við svipuð tækifæri nefni ég ofnæmi mitt fyrir ákveðnum mjólkurvörum (sem lýsa sér með skyndi-uppköstum [e. projectile vomiting = http://en.wikipedia.org/wiki/Projectile_vomiting%5D) og Aspartame (sem lýsir sér með sprunginni húð og gigtarverkjum í hendi).

    Þessir kvillar eru þess eðlis að ég verð að halda mér frá téðum efnum. Ég er búinn að prófa bakteríudrepandi krem og própanól og spes sápur og krem til að taka bólurnar af bakinu á mér en það eina sem virðist virka er að nota Neutral (http://neutral.se/).

Comments are closed.