Menningarferð


Þegar fólk af minni tegund hættir að smakka áfengi, er fátt orðið eftir lífinu sem veitir því ánægju. Sú fölskvalausa gleði sem fylgir áfengisdrykkju, er erfitt að finna í allsgáðum lifnaðarháttum. Hlátur, léttuð og kátina, tilheyra ölvaðri fortíð og allar tilraunir hins allsgáða til að dæla gúddí gúddi efnasamskiptum út í blóðrásina með náttúrulegum og ómenguðum hætti eru dæmdar til að mistakast.

Líf hins allsgáða verður aldrei aftur gott. Hann getur valið að loka sig af frá samfélaginu, eða bíta á jaxlinn og reyna af veikum mætti að gleðjast í félagi við fólk sem leyfir sér þann munað að lyfta glasi, lifa og leika sér. Sú gleði sem hann gerir sér upp, verður þó aldrei nema hjóm eitt í samanburði við þá hamingju og það frelsi sem fylgir neyslu á skynslævandi drykkjum. Raunveruleikinn er óþverri. Það er því nauðsynlegt að komast í burtu frá honum, endrum og eins.

Menn eins og ég, verða því að finna sér skemmtun í einhverju öðru. Þegar ég fer á mannamót, hlægir mig fátt meira en þegar einhver fær sér aðeins of mikið í stóru tánna og gerir skandal. Við þannig aðstæður gleðst ég í innra Jíhadinu mínu og sannfærist um að ég hafi gert rétt með að velja mér allsgáð líferni.

Í nýafstaðinni menningarferð minni norður til andskotans, tók enginn að sér að gera sig að fífli, nema undirritaður. Síðasta kvöldið, var slegið til stórveislu í Mývatnssveit. Borðin svignuðu undan kræsingum og gúmmilaði og át ég mig næstum í ómegin. Eftir nokkur smellin skemmtiatriði, voru kallaðir til akademískir sérfræðingar af tónlistarsviðinu til að sjá um dé joð mál. Það kom mér á óvart að svona hæfir menn, gætu staðið fyrir jafn hryllilegu lagavali. Eftir að hafa drukkið 5 vatnsglös, og eina kókakóla flösku, var ég orðinn nógu kjarkaður til að stíga á dansgólfið. Videomyndavélin mín varð eftir á borðinu í umsjá þeirra sem sátu með mér. Hreyfimyndina hér að neðan tóku þeir opinmynntir af mér þar sem ég steig einkar skæslegan dans undir einu undantekningunni á ABBA og Bítlunum: Stolt sigli fleyið mitt.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.
Posted on November 9, 2008 at 17:32 by siggi · Permalink
In: Veflókar

19 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Rósi
    on 2008/11/09 at 18:51
    Permalink

    Flottur ertu. Sveitaböllin eru alltaf bezt. Hinir eru allir fullir og þá getur mar líka sleppt fram af sér beizlinu.

  2. Written by Hólmfríður
    on 2008/11/09 at 22:01
    Permalink

    Flottur

  3. Written by siggi
    on 2008/11/09 at 23:22
    Permalink

    Flottur? Ég er nú meira eins og frík.

  4. Written by katrín
    on 2008/11/10 at 01:13
    Permalink

    hahaha ég horfði alveg á þetta tvisvar og hló upphátt í bæði skiptin

    mér finnst þú samt ekkert asnalegur en þetta er bara svo fyndið

    (og já ég drekk ekki og dansa aldrei)

  5. Written by Hetjan
    on 2008/11/10 at 09:20
    Permalink

    Stelpur dansa!

  6. Written by Hetjan
    on 2008/11/10 at 09:22
    Permalink
  7. Written by Hólmfríður
    on 2008/11/10 at 11:49
    Permalink

    Það var svosem auðvitað að þér fyndist þú eins og fífl, mér finnst þú flottur!

  8. Written by Inga
    on 2008/11/10 at 13:30
    Permalink

    Þú ert nú meira krúttið

  9. Written by Linda María
    on 2008/11/10 at 13:41
    Permalink

    Þú ert æðislegur!

    Baksvipurinn minnir á ungan hrægamm sem er að hefja sig til flugs og mér finnst nýja ofsatrúarlúkkið vera að gera sig fínt!

  10. Written by Hekla
    on 2008/11/10 at 14:10
    Permalink

    Skringilega heillandi. Takk fyrir að gefa mér hlátur.

  11. Written by magga frænka best
    on 2008/11/10 at 18:33
    Permalink

    Sko. Þú minnir okkur Helgu á Riff Raff dansa The Time Warp. En okkur fannst hann alltaf heillandi, á hátt fattaru. Gerðu þetta sem oftast. Þetta ruglar efnaskiptunum og flækir Jíhaddið!

  12. Written by Brennsi
    on 2008/11/10 at 22:29
    Permalink

    já Siggi minn þetta var athyglisvert vakti mikla kátínu hjá mér.. Þú rúllaðir þessu upp ;)

  13. Written by Hermann Hjartarson
    on 2008/11/11 at 03:39
    Permalink

    Nei sko !

    Týndi kaflinn úr dauðataflinu kominn í leitirnar.

    Verulega óhugnanlegur dans.

  14. Written by Þórunn
    on 2008/11/11 at 08:18
    Permalink

    Það eru ekki margir svo hugrakkir að taka af sér myndband við þessar aðstæður, ég myndi til dæmis ekki vilja eiga mig á teipi dansandi. Þetta var ótrúlega skemmtilegur skottís, búin að flissa eilítið. Bara skemmtilegt!

  15. Written by siggi
    on 2008/11/11 at 10:59
    Permalink

    Ég fékk ekki neinn til taka mynd af mér dansa. Það voru félagar mínir sem gerðu þetta í illkvittni sinni, enda orðrómaðir óþverrar.

  16. Written by Þórunn
    on 2008/11/12 at 09:01
    Permalink

    ok skil! ótuktirnar!

  17. Written by sisilly
    on 2008/11/12 at 12:04
    Permalink

    YUHUUUUUUUUU!!! What a fantastic documentation of the event, I really missed something hey?
    lovely to see ya! so Akureyri was gummilad I see…. Now get ready to Tango lala’

  18. Written by ka
    on 2008/11/14 at 00:15
    Permalink

    minnir mig á ákveðinn gæja sem byrjar á Gé

  19. Written by siggi
    on 2008/11/14 at 10:51
    Permalink

    Ég lærði dans af GéPé. :)

Subscribe to comments via RSS