Einlit sál í lífsins leikriti

November 18, 2008 21:11  

Ég hef álitið mig eitt af fáum hjartahreinum og fallega þenkjandi börnum guðs, þó svo að færslan hér á undan beri þess merki að ég eigi mér örlítið dekkri og súrari hlið. Ég hef þó komist að því að það kostar mig stundum töluverð átök að vera grandvar, í leik og starfi.

Fæstir viðurkenna í lífsins leikriti að eiga í sarpi sínum fleira en gott þykir. Ef þeir gera það, þá er það eitthvað sem á heima í fortíðinni og dó með henni. Mér sjálfum var innrætt að vera heiðarlegur í viðskiptum mínum við annað fólk. Kristin gildi voru við lýði í mínu uppeldi. Svo guðlega var faðir minn innréttaður að minnstu munaði að ég endaði uppi sem prestssonur fyrir austan fjall. Sagan segir að það hafi munað aðeins einu atkvæði og sá er greiddi það atkvæði fór mannavillt.

Ég varð því fyrir töluverðu áfalli, þegar ég varð þess var, að í mér blundar dekkri hlið. Ég sem hélt að sál mín væri einlit, eða hvít eins og snjór. Ég var staddur við kassann í Rúmfatalagernum, með þrjár hundrað kerta jólaljósaseríur, og tvær náttbuxur sem reyndust of stórar. Afgreiðslustúlkan, sem var of brosmild fyrir minn smekk, hafði einhverra hluta vegna, ekki náð að lesa vöruröndina á jólaseríunni með vörurandalestæki hins konunglega Rúmfatalagers, og rukkaði mig því einungis fyrir náttbuxurnar ómögulegu.

Innra með mér upphófst hatrömm barátta góðs og ills. “Það er kreppa!” fullyrti hinn illi Sigurður, við hinn góða siðláta Sigurð. Góði Sigurður, sem aldrei hefur anað að neinu, dokaði við og hugsaði málið. “Afhverju er í lagi að vera óheiðarlegur í kreppu?” spurði hann með bergmálandi kirkjuröddu. “Kreppa er eins og stríð og það er allt leyfilegt í stríði!” sagði vondi Sigurður með dimmri röddu. “Kreppa, eða ekki kreppa, þetta er rangt!” sagði góði Sigurður og leit upp til himna. “Þú ert að græða á þessu sex þúsund krónur! Taktu nótis af því sem ég segi!” sagði vondi Sigurður. Allt í einu mundi góði Sigurður eftir, þætti sem hann sá í sjónvarpinu, þar sem gerðar voru athuganir á hversu heiðarlegt fólk væri. Myndavél var komið fyrir og afgreiðslukona var látin gera mistök sem voru kúnnanum í hag. Aðeins örfáir gerðu athugasemdir. Ein eldri kona, sneri þó við, eftir að hafa áttað sig, og leiðrétti mistökin. “Ég vil vera eins og þessi kona!” sagði ég við vonda Sigurð og hrinti honum, þannig að hann datt í gólfið og fékk blóðnasir.

Þegar ég settist út í bíl, leið mér aðeins betur með sjálfan mig. Það stóð þó ekki yfir lengi, því……..

Comments

19 Responses to “Einlit sál í lífsins leikriti”

  1. Hólmfríður on November 19th, 2008 13:01

    Ég er hrædd um að góði Sigurður sé að verða undir í baráttu góðs og ills, í minni nánustu fjölskyldu (þ.e. mér og synir mínum, á ekki við um manninn)er góða dýrið alltaf búið að gjamma "þetta er ekki rétt hjá þér, ég á að borga miklu meira" eins og fífl, áður en aumingjans "illa" tuskan nær að koma einni hugsun að.

  2. siggi on November 19th, 2008 13:30

    Nei, góði Sigurður hefur alltaf betur í viðureign sinni við vonda Sigurð, enda er Sigurður með hjartahreinustu mönnum þessa heims.

  3. Linda María on November 19th, 2008 15:29

    Mér finnst áhyggjuefni að þú skulir láta þér detta í hug að kaupa jólaseríu fyrir 6000 krónur!

    Og til hvers þarftu tvennar náttbuxur?

  4. siggi on November 19th, 2008 15:51

    Eftirfarandi eru svör við síðustu athugasemd:

    #1 - Ég er jólabarn dauðans!

    #2 - Ég er alltaf að setja í vél eða tvær, þannig að það er gott að eiga til skiptanna.

  5. Linda María on November 19th, 2008 16:40

    Þú getur þvegið náttbuxurnar að morgni - hengt þær til þerris á meðan þú ert í vinnunni og farið í þær að kvöldi!

  6. Linda María on November 19th, 2008 16:44

    Annars fer að líða að því að ég hengi mig á víðavangi í mótmælaskyni við hagsstjórn lýðveldisins.

    Og þá er ég ekki að spauga!

  7. Linda María on November 19th, 2008 16:47

    ...einu essinu fleira eða færra. Who cares?
    hagstjórn...hagsstjórn...

  8. siggi on November 19th, 2008 16:56

    En ég er alltaf í náttbuxum heima hjá mér. Ef ég vinn heima, á ég þá bara að vera rassaber yfir daginn? Finnst þér ég hafa bruðlað með peninga þegar ég keypti mér auka náttbuxur? Var ég með því að taka þátt í sukki þjóðarinnar? Er ég sökudólgurinn? Er ég vondi kallinn í þessu skúespili?

  9. Hólmfríður on November 19th, 2008 17:35

    Loksins einhver áþreifanlegur til að beina reiði sinni og gremju að, takk fyrir að taka það að þér, ert álíka mikill maður og Þórólfur fyrrverandi borgarstjóri sem einn axlaði ábyrgð fyrir sukk bensínsalana.

  10. Linda María on November 19th, 2008 18:53

    Sigurður, þú gefur aðrar buxurnar til Mæðrastyrksnefndar - og svo gleymum við þessu!

  11. Pjétur G on November 19th, 2008 19:37

    Hvað með jólaseríurnar (sem eru líklega 20 talsins) Linda, verður hann ekki að gefa helminginn af þeim í skókassa til fátækra barna í úkraínu?

  12. Linda María on November 19th, 2008 20:20

    Jú,ég skaffa kassann!

  13. Frú Sigríður on November 19th, 2008 20:35

    Ég er kassinn.

  14. Hólmfríður on November 20th, 2008 08:34

    Hver ætlar að skaffa rafmagn í úkraínu?

  15. Pjétur G on November 20th, 2008 08:45

    tja þú gætir rétt eins spurt hver ætlaði að skaffa skókassa á íslandi?

  16. mhg on November 20th, 2008 22:33

    Siggi ég stal handa þér fjórum Joe Boxer lúxus náttbuxum í gær. Hvert á ég að koma með þær?

  17. mhg on November 20th, 2008 22:39

    Vorum við ekki annars búin að tala um þetta?

  18. Pjétur G on November 21st, 2008 15:51

    það væri nú ekki gott afspurnar fyrir flokkinn ef fréttist að Segurður sprangaði um dúkkuhúsið sitt á stolnum náttbuxum.
    vorum við ekki annars búin að tala um að þú segðir af þér kæra Margrét?

  19. Frú Sigríður on November 21st, 2008 17:09

    Ég stal ekki fyrir þig, Sigurður, eins og Bestarinn, en ég sveik svolítið til að gleðja þig. Ég sveik af manni nýlegt, vel með farið innlegg í holdljósð þitt. Að svo mæltu vil ég axla ábyrgð og segi hér með af mér.

Leave a Reply





Comments for this post will be closed on 18 March 2009.