Einnar línu blogg

November 29, 2008 12:11  

Ég hef í hyggju að breyta aðeins bloggháttum mínum. Í stað þess að skrifa langa tilvistarkreppupistla, skreytta orðaglamri og tilgerð, ætla ég að skrifa einnar línu blogg sem ég yrði úr hugsunum af efsta lagi heilatuðru minnar. Ummæli mín um hitt og þetta sem betur mætti fara í mannlífinu, varpa ég fram fullviss um að allir séu sérstaklega áhugasamir um það sem ég hef fram að færa.

Hér eru dæmi um tímamótahugsanir sem gætu orðið að fyrirtaks einnar línu bloggum:

“Ég er svangur!”
“Ohhhhh, ég vildi að ég væri sofandi!”
“Kannski ætti ég bara að flytja til útlanda!”
“Hann er fáviti!”
“Ef ég væri með tvö typpi…..”
“Svo kom í ljós að hún er vond manneskja.”
“Mikið er kalt - ég ætti kannski að kveikja á gasinu?”
“Best að fara inn á facebook, það eru heilar tvær mínútur síðan ég gerði refresh.”
“Hver er ég til að dæma um hver er fáviti - ég er fáviti!”
“Ég er að fitna!”

Comments

9 Responses to “Einnar línu blogg”

  1. Elías on November 29th, 2008 14:20

    Sko, einnar línu blogg er bara Facebook.

  2. Pjétur G on November 29th, 2008 15:38

    Twitter?

  3. Hetjan on November 29th, 2008 18:23

    Ég tók svona test fyrst þegar ég byrjaði að blogga; eða amk þegar ég sá hvert stefndi. Innblástur til þess fékk ég frá betu rokk, nánar tiltekið úr frásögn af því að einhver sem ég man ekki hvað heitir lengur hafi komið til hennar með einhvern mat–að mig minnir kjúkling-og hvað það segði nú um hann og hennar vini og stöðu hennar.

    Bloggtilraunin fólst í því að vera sem yfirborðskenndastur og að hámarka allt froðusnakk. Ég átti nokkra góða spretti með nokkrum "ó mæ god þettersvofrábært" og "váhvaðéghlakkatilaðfaraaðgera" setningum.

    Ég var mikið gagnrýndur fyrir þetta blogg í samtökum iðnaðarins og er ég því alveg viss um að fólk fattaði ekki djókið (sem þó var vel útskýrt í eldri færslum). Það mætti halda að þetta pakk kynni ekki að lesa leiðbeiningar...

  4. mhg on November 30th, 2008 23:41

    Þú ert hvorki feitur né fáviti. Kannski ertu sofandi?

  5. Vaff on December 1st, 2008 13:53

    Einnar línu blogg eru best. Ég nenni ekki að lesa neitt annað.

  6. Þórunn on December 1st, 2008 19:37

    Mér finnst alls ekki að blogginu þurfi neitt að breyta eða stytta. Þetta er eina bloggið sem ég nenni að lesa
    Keep it up!
    kv.
    Þórunn

  7. Einar on December 2nd, 2008 14:49

    "Hvað myndi gerast ef prumpin mín myndu hætta að lykta?"

  8. Solla on December 2nd, 2008 21:24

    Sammála Þórunni hér fyrir ofan. :)

  9. Frú Sigríður on December 2nd, 2008 23:41

    Sammála Einari hér fyrir ofan. :D

Leave a Reply





Comments for this post will be closed on 29 March 2009.