Mempiss

Undantekningalaust þegar ég flýg milli landa fer ég að hugsa um hitt og þetta sem getur farið úrskeiðis meðan á flugferðinni stendur. Ég er ekki haldinn svokallaðri Aviophobia/Aviatophobia. Ég er síður en svo hræddur í flugvél. En ég læt ímyndunarafl mitt hlaupa gersamlega með mig í gönur. Í flugtaki sé ég fyrir mér þar sem vélin rifnar í tvennt og maðurinn í röðinni fyrir framan mig missir hausinn eða tvístrast og útbíar í allar áttir. Eða þá að annar vængurinn springi í tætlur á miðju atlandshafinu og vélin steypist í sjóinn. Þannig er mál með vexti að ég er á útleið enn og aftur. Árleg ferð mín til Ameríku, nema þá að þessi verður farin í allt öðrum tilgangi en þær fyrri. Ég er nefnilega að fara að heimsækja góðvin minn hann Rúnar, sem býr í Mempiss ásamt kvonfangi sínu henni ME. Ég ætla að fá mér Elvis breakfast sem samanstendur af hamborgara, frönskum og hálfu valium glasi og svo ætla ég að fá mér sundsprett í Mississippi ánni. Guð, hvað ég hlakka til. Ég iða bara allur til og frá, rétt eins og krakkaskratti sem hefur innbyrgt of mikinn sykur.

Posted on March 20, 2006 at 22:13 by siggi · Permalink
In: Veflókar

2 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Allý
    on 2006/03/20 at 22:17
    Permalink

    Minntu mig á að sitja aldrei, aldrei fyrir framan þig í flugvél

  2. Written by Fóstradamus
    on 2006/03/21 at 23:39
    Permalink

    Var það ekki þannig sem Jeff Bucley drukknaði í Missisippi? Hann fór í sund belgfullur af valium og hamborgurum

Subscribe to comments via RSS