Nágrannar

“Grannar, allir þurfa góða granna, trallallallalallalla…..”

tva_douglas_dam_jack_hammer

Nágranni minn, karl yfir fimmtugt, á mikið af kraftmiklum verkfærum sem gefa frá sér allskonar andstyggðarhljóð. Í dag má heyra glakk, glakk, glakk, glakk í milljón vatta múrbrjót. Í gær, sagaði hann með hjólsög allan daginn. Ekki var hann að saga ektakvinnu sína í búta, því núna þessa stundina, þegar ég reyni að skrifa ólund mína í burtu, situr hún með vinkonum sínum út í garði og talar hátt og snjallt með reykmettaðri viskíröddu.

Stundum vildi ég að ég byggi út í sveit.

Posted on May 27, 2009 at 16:13 by siggi · Permalink
In: Veflókar

9 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Pjétur G
    on 2009/05/27 at 17:42
    Permalink

    Mér reiknast til að þú hafir kvartað undan nágrönnum þínum eða nánasta umhverfi allar götur síðan þú fluttir í þetta margrómaða póstnúmer sem þú þess á milli heldur ekki hlandi yfir.

    Það er kannski hluti af rómantíkinni við að búa þarna mitt í hringiðunni?

  2. Written by siggi
    on 2009/05/27 at 18:43
    Permalink

    Ég hef búið í þessu póstnúmeri síðan ég kom heim frá Ísrael, c.a 12 ár, fyrir utan þegar ég bjó upp í Skaftahlíð í mjög skamman tíma. Ég hugsa að ég uni mér best í afdölum, símalaus, og alveg úr kontakt við fólk. Fólk á það til að vera óþolandi; ég er þar engin undantekning, enda þoli ég sjálfan mig verst allra.

  3. Written by Pjétur G
    on 2009/05/27 at 18:59
    Permalink

    Ég get huggað þig með því að þessu er svipað farið hérna upp í breiðholti, mínir nágrannar samanstanda af portúgala sem stendur í þeirri trú að dekkjageymsla hússins sé undir svefnherbergisglugganum mínum og fólki sem hefur umbreytt efri hæð hússins í fótsnyrtistofu, auk þess sem þau virðast hafa það að tómstundargamani að bora í veggi!

    Já svo er ég einmitt líka óþolandi

  4. Written by spritti
    on 2009/05/27 at 23:53
    Permalink

    Hugsið ykkur hvað Gísli á uppsölum hafði það gott. Stundum langar mig að lifa jafn afskekt og hann. Sérstaklega þegar maður heyrir frygðarveinin í parinu á hæðinni fyrir neðan. Svo er nú það.

  5. Written by Bergþóra
    on 2009/05/28 at 00:28
    Permalink

    Nágranni minn á panflautudisk sem mig langar að saga í öreindir.

  6. Written by Pjétur G
    on 2009/05/28 at 06:09
    Permalink

    Eigum við kannski að stofna með okkur samtök um fólk sem á ömurlega nágranna, Siggi þú mátt vera formaður, það verður að vera Formaður!

  7. Written by Linda María
    on 2009/05/28 at 09:15
    Permalink

    Eitthvað segir mér að Gísli á Uppsölum hafi, í villtustu draumum sínum, búið á miðhæð í miðju-stigagangi a.m.k. 8 hæða fjölbýlishúss…

  8. Written by solla
    on 2009/05/28 at 10:26
    Permalink

    Í nikótínfráhvörfum mínum í gærdag fauk í mig vegna sígarettureykstybbunni sem smeygði sér inn um framdyrnar hjá mér. Allir reykja í stigaganginum…nema ég (7,9,13).

  9. Written by Steini Bjarna
    on 2009/05/30 at 08:06
    Permalink

    Nú jæja vinur sæll, ég nýkominn frá Thailandi. Við höfðum nú alltaf mætur á Svenna Wium þegar við fengum okkur lúr í hrútaherberginu. Sá maður kunni nú að handleika þesi verkfæri af mikilli snilld. Fólk á alltaf að gera það sem það gerir best. Þú í tölvunum og Svenni í handrunkinu:-)

Subscribe to comments via RSS