21

June 1, 2009 22:06  

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Í dásamlegri fortíðarþrá, hef ég á liðnum dögum gruflað í gömlum myndböndum. Í bútnum hér að ofan, sem tekin er um sumarið 1991, er ég einungis 21 árs gamall. Ég er staddur í kaffi og sígó að Hlíðarvegi 1, í Kópavoginum. Í bakgrunni má heyra Steina Bjarna(Þorsteinn Óttar Bjarnason), tala við einhvern í síma; ég giska á Hörð Júlíusson, eða Stein Skaptason, en ég er samt ekki viss um að Steinn hafi átt síma þegar þetta var, þar sem hann var fráhverfur nútímatækni. Í klippunni er ég hærðari en mexíkóskur flagari á fengitíma, en fáeinum árum síðar rakaði ég í fyrsta skipti hárið alveg af mér, og hefur það ekki fengið að vaxa af neinu ráði síðan. Ekki hefði hvarflað að mér að ég ætti eftir að gera heiminum þessa klippu aðgengilega 18 árum síðar.

Comments

5 Responses to “21”

  1. spritti on June 1st, 2009 23:10

    Skondið að sjá lífið í kópavoginum þegar ég var lítill

  2. Hetjan on June 2nd, 2009 00:33

    Mann langar nú bara mest að taka þennan ungling og slá hann…og gefa honum svo hummus

  3. Steini Bjarna on June 2nd, 2009 08:59

    Nú það eru aldeilis trítin dag eftir dag. Þú ert bara mjög reffilegur, værir ekki síður efnilegur sem leikari heldur en leikstjóri og framleiðandi.

  4. Pjétur G on June 2nd, 2009 17:27

    Fallegt!

  5. sisilly on June 27th, 2009 15:18

    ncredibile!!! Smoke in your eyes…. xxx Sis