Porgy and Bess

Undanfarnar vikur er ég búinn að vera að sálast úr ógeðslegum leiðindum. Af þessum sökum ætla ég að fljúga til hennar Ameríku í morgun. Þar sem smjör drýpur af hverju strái og allir eru hressir. Svo ég ætla að leyfa mér að segja við alla sem hafa haft eitthvað af mér að segja að hoppa upp í rassgatið á sér, því ég kem aldrei aftur. Ég hef eytt meira eða minna síðustu 36 árum ævi minnar í þennan klakadröngul og þetta orðið alveg ríflega prýðilegt. Ég er farinn til Hollywood með klarinettinn minn. Þar sem listamenn á borð við undirritaðan hópast saman til syngja og tralla í óendanlegri sköpunargleði. Hér er mönnum af mínu sauðahúsi haldið niður af íhaldsömum sveitalúðum.

Ég er líka búinn að fá alla upp á móti mér hér í húsinu. En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott, því ég hef í kjölfarið master-að að spila ‘summertime’ eftir George Gershwin úr kvékmyndinni Porgy og Bess. Porgy og Bess er kvikmynd sem breytti mínu lífi. Áður en ég sá hana var ég soldið dapur, en eftir að hafa rennt í gegnum hana þá langaði mig til að deyja. En það er sungið og trallað í henni, ó guð já, sungið og trallað, sungið og trallað. En nú ætla ég að safna óvinum í Memphis, ég var nefnilega að uppgögva alveg glænýja hálfnótu og sú uppgögvun opnar fyrir heilt safn af gömlum ættjarðarlögum.

Rúnar, láttu renna í heitt bað fyrir mig, I’m coming home.

Posted on November 8, 2006 at 21:16 by siggi · Permalink
In: summertime, Veflókar

17 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Hetjan
    on 2006/11/08 at 23:15
    Permalink

    Þér heldur að þér leiðist! Ég skora á þig að endurskoða þetta eftir að hafa kennt apache2 að vera reverse proxy!

  2. Written by B.
    on 2006/11/08 at 23:50
    Permalink

    Á ég að taka þetta sem svo að þú sért að fara af landi brott? Er Alaska fyrirheitna landið?

    Eða er þetta e-r aganlegur misskilningur hjá mér?

  3. Written by siggi
    on 2006/11/09 at 01:16
    Permalink

    B mín kæra, heldurðu að ég sé ekki bara búinn að ráða mig á grillið hjá Holling og Shelly. Já, hver hefði trúað því að ég ætti eftir að enda uppi sem borgaraflippari.

  4. Written by runar
    on 2006/11/09 at 13:14
    Permalink

    Það er beðið eftir þér hér. Ég breitti nokkrum hlutum með komu þína í huga, græna herbergið verður tekið í notkun, síðan breitti ég aðeins í stofunni og skipti um stjórn þannig þú verðir ekki tekinn og pintaður. Notarðu baðsölt?

  5. Written by sono io
    on 2006/11/10 at 16:33
    Permalink

    elo quick pop in in a cafe where the line is so , so… Today I get to feel the real weather of in other words little britain’ rain. But the visit was in many ways successful. Whish you happy driving round the u s of a. Ciao and greatings to Runar and Emy.

  6. Written by Frú Sigríður
    on 2006/11/10 at 18:48
    Permalink

    Myndir. Ég vil myndir. Af Rúnari. Af Rúnari að aftan, af Rúnari á hlið af Rúnari að ofan og af Rúnari að neðan. Og svo eina af Rúnari líka.

  7. Written by Rustakusa
    on 2006/11/10 at 22:59
    Permalink

    Frú Sigríður: ég er bara orðin spennt yfir þessum Rúnari.. :-)

  8. Written by E.Ó.
    on 2006/11/11 at 20:31
    Permalink

    þú verður að leita að hinum hálfnótunum. Þú kemst ekki langt á einni einmana hálfnótupútu.

  9. Written by maggabest
    on 2006/11/12 at 01:58
    Permalink

    Hvaða helvítis andskotans röfl og tuð er þetta alveg hreint endalaust Siggi? Ertu að segja að við Tóti, Sigríður og allskonar fleira fólk sé ekki nógu fallegt fyrir þig? Hvað ertu að eltast við þennan Rúnar og þetta helvítis Memphis alltafhreint?
    Geturðu ekki bara verið sáttur hér eins og við hin.? Átt ekkert erindi til Mempfís.

  10. Written by Pétur G
    on 2006/11/12 at 12:27
    Permalink

    Heyr Heyr Magga!

    mar …. mar bara skilur þetta ekki …

  11. Written by siggi
    on 2006/11/12 at 17:04
    Permalink

    Þú ert svo mikil krúsídúlla Margrét.

  12. Written by Frú Sigríður
    on 2006/11/13 at 18:51
    Permalink

    En ég? Er ég ekki krúsídúlla? Er ég kannski bara viðbjóður? Hægðaláfa kannski? Búhúhú. ÉG SAGÐI BÚ – HÚ – HÚ!

  13. Written by Vorhret í lofti : SiggiSiggiBangBang
    on 2008/03/13 at 14:38
    Permalink

    [...] er ekki eina skiptið sem ég hef skrifað um Summertime og Porgy and Bess. Hér er færsla um P&B, og ferð mína til Ameríku, en nú vill svo skemmtilega til að ég er að hugsa um að skreppa til Ameríku um páskana, til [...]

  14. Written by Linda María
    on 2008/03/15 at 09:58
    Permalink

    …og hvaða grafhýsi hygstu heiðra með nærveru þinni í Ameríku? Elvisar eða ástarinnar?

    Éger ekki farin að heyra neitt um ,,Svan á báru´´áskorunina SEM ÞÚ TÓKST vel að merkja.

    Nei, ég er ekki bitur miðaldra kona – af hveru spyrðu?

  15. Written by Linda María
    on 2008/03/15 at 12:11
    Permalink

    Hér hefurðu,,g-ið´´sem vantar í ofansagt.

  16. Written by siggi
    on 2008/03/15 at 15:57
    Permalink

    Er ekki svolítið seint í rassinn gripið? Þessi færsla er frá því 2006.

  17. Written by Linda María
    on 2008/03/15 at 16:14
    Permalink

    Égvar að bregðast við síðustu umsögninni þinni sem er,sé mér ekki farið a förlast,dagss.13.03.08 – og steinþegiðu svo!

Subscribe to comments via RSS