Skítur skeður

February 1, 2007 23:02  

Í síðustu nótt dreymdi mig að ég væri aftur byrjaður að vinna á sjúkrastofnun í ónefndu bæjarfélagi. Ástæðan fyrir því að ég brá á það ráð að ráða mig til vinnu hjá stofnuninni, var sú að litla sæta fyrirtækið mitt var ekki að landa nógu mörgum kílóum af evrum.

Svo úr varð að ég réði mig til starfa, í þágu almannaheill. Ég var staddur á vaktinni, eins og það heitir, þegar einn vistmaður stofnunarinnar, kastar í mig illa þefjandi hægðum sínum. Hann hlær eins og skrattinn, yfir uppátæki sínu. Ég var í draumnum mjög teprulegur, og þótti illa að mér vegið. Ég rembdist við að skola af mér skítinn, en það var alveg sama hvað ég skrúbbaði og skolaði, allt kom fyrir ekki, alltaf fann ég aðra skítaklessu.

Þegar ég var loksins orðinn tandurhreinn, eða eins tandurhreinn og hægt er að verða í svona starfi, var komið að því að skúra gólf og vaska upp. Við það féllust mér hendur, og ég tilkynnti stúlkunni sem var með mér á vaktinni, að ég þyrfti ekkert á þessari vinnu að halda. Ég væri orðinn mjög virtur kaupsýslumaður í 101 Reykjavík, og það að þrífa skít og drullu, væri bara nú á dögum langt fyrir neðan mína virðingu.

Ég tók af mér uppþvottahanskana og tilkynnti nærstöddum að ég væri farinn, og þau gætu tekið þroskaþjálfunina sína og troðið henni upp í boruna á sér. Ég man að þegar hér var komið við sögu í draumnum, brá gömlum hústjóra fyrir. Í tilefni af athæfi mínu var hann prýddur vanþóknunarsvip. Einmitt þeim vanþóknunarsvip sem fór honum svo afskaplega vel, þegar ég vann hjá honum í vakanda lífi.

Ég gaf honum miðputtann, ( eitthvað sem mig dreymdi um að gera ) og trítlaði á dyr.

Skítur tekur á sig hinar ýmsustu myndir. Í ákveðnum skilningi vinn ég ennþá við að þrífa skít. Skíturinn er kannski stafrænn að þessu sinni, en skítur engu að síður.

Comments

13 Responses to “Skítur skeður”

  1. Pétur G on February 2nd, 2007 2:26 am

    er það ekki fyrirboði fjárhagslegrar velmegunar að hafa það sem myndi vilja kalla í þessu tilfelli "saurfarir"?

  2. sono io on February 2nd, 2007 8:26 am

    Interessante... kuka kuka

  3. Frú Sigríður on February 2nd, 2007 10:53 am

    Hægðir eiga sér stað.

  4. Hólmfríður on February 2nd, 2007 12:51 pm

    Ef að saur er fyrirboði fjárhagslegrar velmegunar þá er líklega ekki gott að snúa við honum baki

  5. Finnbogi on February 3rd, 2007 4:41 pm

    Saur boðar breytingar.....Skíturinn að fara út,ef þú leyfir honum það.

  6. Hetjan on February 3rd, 2007 8:40 pm

    Það er einstaklega gott að hlusta á ykkur

  7. siggi on February 3rd, 2007 8:55 pm

    Já, það kemur heim og saman við þau undur og stórmerki sem gerðust á prívasíinu fyrr í dag. Enda líður mér snöggtum skár.

  8. Frú Sigríður on February 4th, 2007 12:17 am

    Já, segðu okkur endilega betur frá því Sigurður. Láttu koma fram eftirfarandi upplýsingar:
    1. Lit
    2. Áferð
    3. Kornastærð
    4. Glansstig
    5. Lengd
    6. Sverleika, ef það á við.
    7. Seigju
    8. Storkumark
    9. Hitastig.
    10. Eðlismassa
    11. Fallþunga

  9. Hetjan on February 4th, 2007 12:55 pm

    12. Tón
    13. Lykt
    14. Hörku

  10. Maggav. on February 5th, 2007 12:41 am

    Siggi, láttu Frú Sigríði ekki rugla þig í ríminu. Storkumark er ekki raunverulegt íslenskt orð, það er ekki til, og ef það væri til væri það ekki notað til að lýsa kúk. Þetta er bara eitthvað rugl.

  11. Maggabest on February 6th, 2007 11:09 pm

    Siggi. Kúkur táknar traust. Þessi maður treysti þér nógu vel til að horfa á sig kúka og ekki nóg með það... til að taka við kúknum líka. Þetta hlýtur að segja sig sjálft.

  12. kalli on February 19th, 2007 10:38 am

    ég held að þessi draumur þinn hafi verið samþættur. Það er að þetta var draumur sem margir áttu, að geta sveiflað puttanum í fésið á manneskjunni. Saurinn er eitthvað annað sem ég kann ekki að skýra

  13. siggi on February 19th, 2007 6:59 pm

    Þetta var tímabilið sem ég fékk ógeð á þroskaþjálfun og normaleseringu. Hvað í fjandanum er það að vera normal eiginlega. Er það að hanga öllum stundum á kaffihúsi, afneita barninu í sjálfum sér og kaupa dýr föt fyrir alla peningana sína. Gott dæmi um hvernig hugmyndafræði og pólítísk rétthugsun gersamlega skítur í sig.