Svíþjóð fyrr í dag – myndband

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.


Í dag dauðleiddist mér lífið og hefði helst bara viljað vera dauður. Til að lyfta mér á kreik skrapp ég yfir lækinn til Svíþjóðar. Allt er gott í Svíþjóð meðan Danmörk er viðbjóður. Allir voru vinalegir og fullir af fölskvalausri gleði. Ég fékk mér fair trade kaffi og ökkólógíska pönnsu með jurtarjóma. Ég brá mér á salernið, og svei mér þá, þar var allt svo dásamlegt. Í hátalara var falleg músik og skilaboð til mín um hvað ég get gert til að verða að betri og meðvitaðri manni. Já, Svíþjóð er fullkomin. Þegar strætisvagn keyrir um göturnar hljómar kvenmaður í hátalarakerfi utan á honum sem segir eitthvað fallegt á sænsku. Svo er sænska miklu fallegra tungumál en danska og þegar Svíar tala ensku þá hljóma þeir ekki eins og þeir vilji þukla á þér lærin.

Posted on March 7, 2010 at 21:21 by siggi · Permalink
In: Veflókar

4 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Allý
    on 2010/03/08 at 09:26
    Permalink

    Jú mikið rétt, svona er allt himneskt í henni Svíþjóðinni.

  2. Written by frk best
    on 2010/03/08 at 14:07
    Permalink

    Vá. Sjálfshjálparklósett!

  3. Written by solla
    on 2010/03/08 at 15:09
    Permalink

    hahaha! Sjálfshjálparklósett!
    -Artí myndband samt sem áður.

  4. Written by Hetjan
    on 2010/03/09 at 00:42
    Permalink

    Það er ekki til ömurlegri hola í jörðinni en Malmö

Subscribe to comments via RSS