Beautiful people

siggi_gen_raviv_3.jpg
Anorexía er málið.

Fólk sem var mér mjög kært og ég kynntist fyrir u.þ.b 12 árum síðan, hefur sett sig í samband við mig. Ég get þakkað þessu vefsetri fyrir, að þau fundu mig.

Í óteljandi skipti hefur mér verið hugsað til þeirra, en ekki komist eftir því hver afdrif þeirra urðu. Þau má finna víðsvegar á heimsbyggðinni, í Kanada, Ameríku, Ísrael. Þessa daganna erum við að bera saman bækur okkar á ríjúníon vef sem heitir facebook.com. Á myndinni er undirritaður þegar hann var mjór og fallegur, Raviv og Genevieve. Þess ber að geta að ég er að éta epli á myndinni. Raviv og Genevieve eru núna gift og eiga tvö börn.

Hugsa sér, hvað þetta líf er mikið ævintýri.

Posted on April 25, 2007 at 18:12 by siggi · Permalink
In: Israel, Veflókar

4 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Rustakusa
    on 2007/04/25 at 23:14
    Permalink

    neibb, alltof mjór þarna, kann ekki við þetta lúkk á þér,
    það vantar fyllingu :-)

  2. Written by Frú Sigríður
    on 2007/04/26 at 11:19
    Permalink

    Þú ert afmyndaður af spiki á þessari mynd. ég skil ekki hvað þú ert að sýna alminlegu fólki þennan ófögnuð. Og étandi að sjálfsögðu. PTHUHH

  3. Written by Maggav
    on 2007/04/26 at 17:00
    Permalink

    Oh já, vá hvað þú ert mjór og fallegur þarna á myndinni, og þá auðvitað hamingjusamur líka. Mér þykir meira til þín koma núna þegar ég hef séð þig svona mjóan.

  4. Written by siggi
    on 2007/04/26 at 17:09
    Permalink

    En Magga, einu sinni var ég 10 kílóum léttari en ég er á þessari mynd. Þá var ég svo hamingjusamur.

Subscribe to comments via RSS