Dr. Lawrence Jacoby

May 20, 2007 02:05  

twinpeaks16.jpgDr. Lawrence Jacoby er ein af dásamlegum uppfinningum snillingsins David Lynch. Hann kemur fram í eftirlæti mínu til margra ára, Twin Peaks.
Dr. Jacoby er kolgeðveikur sálfræðingur, sem er viss um að öll vandamál mannkyns séu á einn eða annan máta tengd kynlífi. Í öll þau skipti sem hann birtist er hann með þrívíddargleraugu á nefinu, nema einu sinni þegar hann er gripinn berskjaldaður við leiði Láru litlu Palmers. Hann er sú manngerð sem étur ekki neitt sem inniheldur glúten og fer reglulega á ristilþvottahús vegna þess að hann er svo skítugur að innan. Hann er mikill áhugamaður um brimbretti og gengur um í Hawaii skyrtum. Hann safnar kokteilaregnhlífum, sem hann skrifar inn á mikilvægar dagssetningar.

Þvílík fegurð í persónusköpun.

Comments

3 Responses to “Dr. Lawrence Jacoby”

  1. SvarTTrasT on May 20th, 2007 9:01 pm

    þetta hljomar ekki olikt fraud sem var með þessa þrahyggju a grunninn til vandamala mankynsins nema hann truði lika að kokain væri lækningin a flestu asam vitölum og jamms þarf að taka það fram..

    best að fa ser þrividdar gleraugu

    hvilik snilld sigurður, tek undir það með þer.

  2. maggabest on May 20th, 2007 10:24 pm

    Dr. Frauð. ....

    Það sauð á Dr. Frauð þegar hann uppgötvaði að hugsanlega væri hann nú eina ferðina enn búin að láta glepjast af einhverjum gleiðgosa."

  3. Pétur on May 22nd, 2007 2:59 pm

    ótrúlegt að þú sjáir fegurðina í þessu, þú sem hatar allt sem tengist neðri byggðum!