Blámi
Lífið er búið að vera alveg sérstaklega leiðinlegt frá því að ég gerði þau hræðilegu mistök að vakna í morgun.
Ég veit ekki afhverju ég er svona skapvondur í dag. Mig grunar þó að ólund mín gæti mögulega haft eitthvað með það að gera að það er haglél úti þegar samkvæmt öllum kúnstarinnar reglum ætti að vera sól og sumar; eða í versta falli bara rigning.
Ég meina…… Hvaða viðbjóður er þetta? Það er guðsvolað vor. Það á ekki að vera éljagangur eða snjókoma!
Hvað gerir maður af mínu tagi, í aðstæðum sem þessum? Drepur hann sig? Tekur hann lúkufylli af hamingjupillum? Étur hann tíu kílóa súkkulaðitertu með flauðskúmmi og jarðaberjum? Fær hann sér sígarettu? Leitar hann á náðir siðspilltra kvenna?
Nei, hann fer rakleiðis á ebay, þar sem jólasveinninn býr.
Og nú vill svo skemmtilega til að rétt í þessu var ég festa fé í 2007 SKY Alto Saxophone w case high F# SAX Saxaphone og ef það er ekki ávísun á gleði og hamingju, þá er mér ekki kunnugt um merkingu orðanna: gleði og hamingja.
Já, þegar lífið er leiðinlegt, þá er leiðinlegt, en þegar lífið er skemmtilegt, þá er skemmtilegt.
Þannig er það nú bara.
on 2007/05/22 at 19:56
Permalink
Ég hefði nú bara haldið áfram að sofa, það er það eina sem mig langar til í þessu hagléli. Er þó fegin að eiga ekki vínberjatré því hagl eyðileggur aumingjans litlu tilvonandi vínberin.
on 2007/05/22 at 22:01
Permalink
Já það er fátt sem hamingjupillan vísakort fær ekki lagað, ef vísakortiði væri óendanlegt værir þú hamingjusamasti Íslendingrinn af öllum hamingjusömum Íslendingum, þökk sé fjármögnunarfyrirtækinu Vísa Ísland.
on 2007/05/22 at 22:04
Permalink
AHAHAHAHAHHAHAHAAH!
Fantastic I say, you will soon have a full blast orchestra in the one man, yes him the SiggiSiggiBangBang man. JZZ JZZ. jzz jzz
on 2007/05/23 at 01:32
Permalink
Veni
Vidi
Visa
on 2007/05/25 at 23:01
Permalink
ég leita aðallega á náðir gleðikvenna..
on 2007/05/26 at 00:36
Permalink
Já, það er frábært Axel. Hvað segir konan þín við því?