Gatan þar sem þú elur manninn

July 28, 2007 17:07  

Vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að birta hér myndbrot úr: Mín fagra frú. Þetta er að sjálfsögðu lagið: On the street where you live. Í aðalhlutverki er geðþekkur uppáklæddur maður sem hefur orðið ástinni að bráð. Það gerir það óhjákvæmilega að verkum að hann missir vitglóruna. Í geðsýki sinni, labbar hann froðufellandi fram og aftur götuna þar sem konan sem hann elskar á heima. Hún er hinsvegar ekkert skotinn í honum. Hún er hrifin af gömlum karlfausk sem þykist allt vita.

Það kann að vera að það sé eilítið samkynhneigt af minni hálfu að hafa gaman af söngleikjatónlist, en mér er nokkuð sama. Mörgum finnst ég eigi að hafa gaman af einhverju karlmannlegu eins og mótorhjólum. Hvað get ég gert? Á ég að þykjast hafa áhuga á smurolíu og fótbolta, til að geta átt betri samskipti við kynbræður mína?

Jæja, ég má ekki vera að þessu, ég þarf að plokka augabrúnirnar fyrir kvöldið.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Comments

6 Responses to “Gatan þar sem þú elur manninn”

  1. B. on July 28th, 2007 18:32

    Aumingjans Freddy, hann hefði eyðilagt myndina ef hann hefði unnið ástir Elísu.

    Spilaðu fyrir okkur Just you wait Henry Higgins, plís.

  2. siggi on July 28th, 2007 21:12

    Ég er hrifnari af: "Damn, damn, damn, damn
    I've grown accustom to her face....."
    Gamli þrákálfurinn þoldi það illa að verða ástfanginn af þessari ungmey. Ég skil það ósköp vel, enda er ást óþverratilfinning.

  3. maggabest on July 28th, 2007 21:26

    Kynbræður þínir eru nú margir hommar, gersamlega áhugalausir um allt sem viðkemur smurolíu og hjólbörðum. Geturðu ekki bara tjillað með þeim og rætt söngleiki? :)

  4. siggi on July 28th, 2007 22:42

    trallal lalla la lælælælæ

  5. eva on July 30th, 2007 15:18

    Ég þekki einn homma sem er smiður, hann er með þá mestu ólund sem hægt er að hafa, þótt víða væri leitað.

  6. siggi on July 30th, 2007 18:41

    Ég þekki líka einn homma. Hann býr í vesturbænum. Einkennilegur maður, hreint út sagt.