köttur köttur bang bang

August 14, 2007 22:08  

kotturkotturbangbang.jpg

Þessi fyrirmyndarköttur er orðinn heimagangur hjá mér. Það var svo um fimmleytið í morgun, að hann tók upp á því að gæla blíðlega við sofandi andlit mitt. Ég var um það leyti staddur í sérlega fáguðum gleðskap í Savannah í Georgíufylki. Ég var að ræða við Jim nokkurn Williams um kaup á dýrindis fornmunum, þegar kisi náði með þrákelkni að klofa yfir í draumalandið mitt. Ég reyndi hvað eftir annað að banda honum frá mér, en hann lét ekki segjast og hélt áfram að kássast upp á mig. “What do you think of this cat?” spurði Jim Williams mig. Ég sagði eins og satt var, að mér þætti þessi köttur alveg ægilega fallegur, en það væri frekar óþægilegt hvernig hann gerði ítrekað áhlaup á hausinn á mér. Jim Williams, hló eins og hross. Um það leyti vaknaði ég.

Comments

10 Responses to “köttur köttur bang bang”

  1. Linda María on August 15th, 2007 6:19 am

    Köttur sem abbast uppá annarra drauma getur ekki heitið annað en Freud a.m.k. Sigmund.

    Á þessum bæ fjölgaði í gær þegar Lubbi,
    5 ára naggrís fékk senda "mail-order bride"
    sem hlaut nafnið Dúdda-mía. Forskeytið eftir Dúdda a k a Loðmundi Þór(sem lést fyrr í sumar, hátt á sjötta aldursári) míunafnið er til þess að hún eigi eitthvað sjálf.

    Dúdda nafnið kom til vegna þess að SÖB vildi skíra hann Jesús, en ég sá fram á illvígar trúarragðadeilur í fjölskyldunni svo málsaðilar sættust á Dúddi. Kannski ég ætti að taka að mér að miðla málum á stríðshrjáðum svæðum?
    Er eitthvað upp úr því að hafa?

  2. sisilly on August 15th, 2007 7:12 am

    Miao Miao, Miaooooooo!!
    So they keep coming hey?
    baci baci
    Sisillian kisa

  3. Hólmfríður on August 15th, 2007 1:44 pm

    Hvar er hinn??

  4. siggi on August 15th, 2007 2:04 pm

    Ég úthýsti honum. Hann var viðskotaillur andskoti. Þessi er eins og hugur manns. Bíddu nú við, þetta hljómar eitthvað einkennilega. Það sem ég er að reyna að segja er að þessi kisi er alger ljúflingur.

  5. agu on August 15th, 2007 10:49 pm

    Nú ég hélt örskamma stund að þessi köttur væri metafór fyrir einhvað sem væri að klofvegast í lífi þínu, og hjarta mitt tók kipp

  6. siggi on August 15th, 2007 10:54 pm

    Þér eruð viðbjóður agu.

  7. maggabest on August 16th, 2007 8:35 pm

    Þegar ég sá myndina og las fyrirsögnina kötturkötturbangbang þá hélt ég að þú hefðir drepið kött eða þá að einhver hefði sett dauðan kött í rúmið hjá þér Gothfather style...ég hugsaði ekkert "pussy in my face" eða neitt þannig enda er ég hætt að stunda kynlíf þar sem það er veikleikamerki og bara fyrir graða lúða.

  8. Linda María on August 17th, 2007 4:29 pm

    ...ah! Takk fyrir að minna mig á það!
    Þarf að undirbúa hátíðahöldin fyrir 5 ára einlífisafmælið. Uppástungur varðandi skemmtiatriði vel þegnar.

  9. siggi on August 17th, 2007 11:34 pm

    Þú verður að gera þér dagamun, það er klárt mál. Hvað með Whitesnake hljómleika?

  10. Linda María on August 18th, 2007 7:58 am

    Ber mér að skilja þetta djúúúúúúúúúúúúpt?

    Hvítu snákar,segið þið honum ...la-lí-la-lí-la-li-la-lí-la-lí-laaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa!!!!!

    Eða er ég bara svona illa haldin?