out of the races

August 27, 2007 22:08  

Lagið sem ég hefði gjarnan viljað dansa við, hefði ég farið á dansiball um síðustu helgi. Illir og forpokraðir vættir komu í veg fyrir að ég léti loks verða af því að fara á Nasa og dansa sokkana af mér. Ekki að þetta lag sé spilað á Nasa, né nokkrum öðrum dansifyllerísgubbustöðum hér á Íslandinu góða.
Out of the races með The Rapture er eitt af mörgum væni- og geðhvarfasýkis lögum sem prýða títtumrædda Rules of Attraction. Atriðið sem er afskaplega eftirminnilegt, sýnir Paul hinn samkynhneigða ögra hómófóbíupabbastráknum Mitchell Allen, með ágengum dansi.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Comments

4 Responses to “out of the races”

  1. nahal on August 27th, 2007 11:39 pm

    http://en.wikiquote.org/wiki/Mitch_Hedberg

  2. B. on August 28th, 2007 6:18 pm

    Ég hefði dansað við... æi þú veist alveg hvað ég hefði dansað við og systir mín líka. Óþarfi að útvarpa lélegum danslagasmekk okkar systra á alnetinu.

    E.s. ég er að fara að gúgla og svoleiðis fyrst ég er á netinu.

  3. siggi on August 28th, 2007 6:43 pm

    Ég gúglaði mikið í morgun, það var alveg ágætt. Sumir fara á hnén, ég gúgla hinsvegar. Þú veist hvernig þetta er, ef ekki þú þá hver?

  4. Linda María on August 29th, 2007 12:50 am

    Ég gúglaði mikið í gærkvöldi - seint.
    Það var fróðlegt, ég fattaði margt...

    Syngist við lagið ,,Ég fargaði hryssu''

    ...og botnaðu svo!!!