Jerry Esperson

September 30, 2007 06:09  

Af öllum dásamlegu persónunum í Boston Legal, samhæfi ég einna best með Jerry Esperson. Jerry er með Asperger heilkenni. Hann skarar framúr í bóklegri lögfræði, en er alveg laus við alla óþarfa félagsfærni. Vegna vanhæfni í mannlegum samskiptum og stundarbrjálæðis er Jerry gert að hætta hjá lögfræðistofunni sem þættirnir gerast á. Hann ákveður þá að taka sig á í mannlegum samskiptum og gengur til sálfræðings, sem beitir hugrænni atferlismeðferð til að hjálpa Jerry að fóta sig í samfélagi við annað fólk. Eftir að hafa verið í nokkrar vikur í meðferðinni, ákveður Jerry að heimsækja gamla vinnustaðinn, til að sýna fyrrum kollegum sínum hversu vel meðferðin gengur.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Comments

6 Responses to “Jerry Esperson”

  1. Fostradamus on October 1st, 2007 21:11

    http://www.jewtube.com/

    check it out....

  2. Vaffarinn on October 1st, 2007 22:46

    Já alveg hreint yndislegt að fylgjast með þeim framförum sem Jerry Esperson tók í mannlegum samkiptum. Þegar hann fékk sér vindilinn var þetta bara eiginlega alveg komið hjá honum.

    Annars vorum við hjónin að horfa á sjónvarpið í gær, en sunnudagskvöldin eru einmitt sjónvarpskvöldin okkar. Við sáum þátt um rannsóknarlögregluþjónninn Adrian Monk og okkur varð þá hugsað til þín.

    Já og vorum við búin að segja þér að við erum búin að kaupa okkur eins tölvur og peysur í stíl (ekki í stíl við tölvurnar bara í stíl við hvor aðra).

  3. B. on October 3rd, 2007 22:41

    Voðalega leikur vefsíðuhönnun í höndunum á þér. Agalega lekkert þetta nýja lúkk. Hverjum hefði dottið þessi smartheit í hug.

    Til lukku með þessa fögru síðu.

  4. siggi on October 3rd, 2007 22:58

    Þetta er harmóníuikærleiksþemað sem ég setti saman í ást minni á mannkyninu.

  5. Soffía litla on October 3rd, 2007 23:04

    'Even if I have none'...Ógeðslega einlægur haahaaha...

    Já, ég er ánægð samt með það Siggi hvað þú ert bara down to earth með þetta að vera ekki á sömu bylgjulengd og allt þetta "venjulega fólk"...

    Vertu bara sáttur við þig Siggi minn...Always*

  6. G.org on October 7th, 2007 17:25

    Mannleg samskipti, alltaf jafnfríkað fyrirbæri, hvernig er hægt að mastera það ?? Miðað við allt sem ég hef fengið að læra þá finnst mér Jerry bara nokkuð góður, og þú Sigurður líka , til lukku með það og nýja lúkkið á síðunni líka