Gordon Cole

Ég var staddur í gleðskap um daginn, þegar góðvinur minn fór að sleikja smettið á sinni heittelskuðu. Við sem sleikjum aldrei smettið á einum né neinum, né erum sleikt, varð um og ó yfir þessum kynferðislegu tilburðum. Hneykslanin og viðbjóðurinn gerði það að verkum að við gleymdum öllu því góða og fallega sem við höfum numið af andlegum risum Samtaka Iðnaðarins; umburðarlyndið og kærileikurinn hurfu sem dögg fyrir sólu. “Viljið þið ekki bara halda hér kynlífssjóv,” hreytti einhver út úr sér. Góðvinur minn, sem ekki er hrifinn af því að láta í minni pokann fyrir almenningsáliti svaraði rogginn eitthvað á þessa leið: “Takið vel eftir því nú endurtökum við atlotin,” sem þau og gerðu.

Tilsvar og háttalag vinar míns fékk mig til að hugsa um atriði úr biblíunni minni Twin Peaks. Í atriðinu sitja Gordon Cole, yfirmaður FBI, Dale Cooper, Shelly Johnsons og Annie Blackburn sbr. “Who’s Annie.” Gordon Cole er leikinn af átrúnaðargoðinu David Lynch. David Lynch elska ég og dái það mikið að ég væri til í að kveikja í mér á Texas búgarði ef hann væri talsmaður þess athæfis.

Gordon Cole er nánast alveg heyrnarlaus. Hann heyrir illa í sjálfum sér og öskrar þess vegna allt sem hann segir. Þegar hann kemur fyrst til Twin Peaks, fær hann sér kaffi og pæ á Double R diner með vini sínum og undirmanni Dale Cooper. Hann hittir þar fyrir Shelly Johnson og kemst að því sér til mikillar undrunar að þó hann heyri svo til ekki neitt í neinum, þá heyrir hann fullkomlega í henni. Hann verður samstundis hugfangin af henni. Í atriðinu ákveður Gordon Cole formlega að tími sé kominn til að fara í sleik við Shelley, hann er truflaður í miðjum klíðum af ungæðislegum kærasta hennar, sem fettir fingur út í athæfið. Gordon Cole, lætur sér fátt um finnast og útskýrir af mikilli yfirvegun fyrir kærastanum hvað sé um að vera.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Að vera sí og æ í sleik, er viðbjóður. Fólk sem fer í sleik í public, eru ekkert nema firrtar skepnur sem á að lóga án tafar.

Posted on October 8, 2007 at 12:51 by siggi · Permalink
In: Trít, Veflókar

13 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Baddi "bytta bytta Johnson"
    on 2007/10/08 at 14:27
    Permalink

    en fagmaðurinn sleikir ekki sprundið þvert og endilangt. Goðið þitt kyssir hana nú bara smekklega þarna.

  2. Written by siggi
    on 2007/10/08 at 15:06
    Permalink

    Goðið mitt má sjúga og sleikja af vild.

  3. Written by Linda María
    on 2007/10/08 at 15:56
    Permalink

    Elsku Siggi og ByttaBytta – þið eruð útverðir tungunnar…

    Ég klökkna af gleði fyrir hönd/brodd íslenskrar tungu.

  4. Written by Hjördís
    on 2007/10/08 at 16:23
    Permalink

    David Lynch er snillingur og Twin Peaks eru uppáhaldssjónvarpsþættirnir mínir.

    Ætli það sé búið að gefa 2. seríu út á dvd?

  5. Written by siggi
    on 2007/10/08 at 16:42
    Permalink

    Jú, seinna season-ið kom á DVD fyrr í ár . Fyrir aðdáendur mæli ég svo sérstaklega með Catching the big fish, hljóðbókina þar sem Lynch les sjálfur.

  6. Written by Hjördís
    on 2007/10/08 at 16:53
    Permalink

    Ok þá get ég kannski farið að kaupa þetta af Amazon

  7. Written by B.
    on 2007/10/08 at 19:07
    Permalink

    Já, ef einhver veit eitthvað um sleika þá ert það þú. Það getur ég svarið fyrir. Og ef þú segir að það sé púkó að vera í sleik þá er púkó að vera í sleik.

    Ég hef alltaf heillast af útliti (e. look) kvennana í Twin peaks. Fölar með svartar þykkar augabrúnir og dökkt/brúnt hár.

    D. Lynch er snillingur, hver annar hefði getað skapað þennan karakter, sem heyrir ekki nema í einni konu.

  8. Written by Holmfridur
    on 2007/10/08 at 20:44
    Permalink

    Hélt eitt augnablik þegar ég las um ást þína á David Lynch að þú værir meira að segja til í sleik við hann á Torginu

  9. Written by agust
    on 2007/10/08 at 20:57
    Permalink

    Ég ætla nú bara að taka upp hanskann fyrir frú Sigríði (ekki það að frú Sigríður þurfi á því sosum) ef frú Sigríður vill vera sleikja einhvern þá finnst mér staður og stund ekki skifta máli, þótt það sé fyrir framan þig. Öfund er hækja sem við öll getum án verið.

  10. Written by Pétur
    on 2007/10/09 at 10:21
    Permalink

    merkilegt alveg hreint hvað kynferðismál og tengdur subbuskapur ber mikið á góma hér á þessu á þessu annars ágæta bloggi!

  11. Written by B.
    on 2007/10/09 at 11:50
    Permalink

    Já ég tek undir með Pétri, þetta er undarlegt. Er þetta svona klámblogg?

  12. Written by Gísli Hjálmar
    on 2007/10/10 at 10:35
    Permalink

    Siggi: þú ert veikur maður … en svolítið skemmtilega veikur!

  13. Written by G.org
    on 2007/10/18 at 23:14
    Permalink

    Já, hann Sigurður er skemmtilegt skrítinn, það er ekki hægt að neita því :) keep up the good work.

Subscribe to comments via RSS