Dah dah dahhh dahh dahhhhhhh

November 27, 2007 20:11  

Þegar ég var strákalingur, vorum ég og besti vinur minn í gervöllum heiminum miklir kvikmyndalúðalabbar. Fátt annað komst að en kvikmyndir, tæknibrellur, framúrskarandi leikstjórar og skæslegir leikarar. Ég hafði reyndar talsverðan áhuga á stelpum líka, en ég hélt þeim áhuga algerlega út af fyrir mig, enda þótti sá áhugi veikleikamerki. Seinna komst ég reyndar að því að það er sannleikur.

Til að stytta okkur stundir, hittumst við heima hjá öðrum hvorum okkar og lögðum fyrir hvorn annan kvikmyndagátur. Annar hafði þá yfir að ráða kvikmyndahandbók sem hann spurði hinn upp úr. Tildæmis: Í hvaða mynd léku John Cassavettes og Kirk Douglas saman í og hver leikstýrði þeirri mynd? Í dag er auðsótt fyrir hvern sem er að fletta upp öllu gúmmilaðinu á internet múví databeisnum stóra og fína, en á þessum tíma voru þessir getraunaleikir okkur mikil áskorun.

Þessi æskufélagi minn, óx líkt og ég upp úr grasi og við héldum hvor í sína áttina. Ég hef margsinnis fyrirhitt fólk með kvikmyndaáhuga, en enginn hefur haft burði til að leika þennan leik með mér. Ég freistast því til að svala þörf minni hér á vefsetri mínu. Ég geri mér grein fyrir að fyrsta spurningin - að því gefnu að ég komi með fleiri spurningar - er skítlétt.

Úr hvaða mynd er þetta stef?

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Comments

12 Responses to “Dah dah dahhh dahh dahhhhhhh”

  1. Baddi da'bytt on November 27th, 2007 22:21

    Close Encounters of the third kind

  2. siggi on November 28th, 2007 00:52

    Í kjölfar þessarar prýðismyndar vaknaði sú spurning hvort maður sjálfur hefði þegið að fara með geimskipinu, vitandi af því að það færi aðeins aðra leiðina. Jú, er það ekki?

  3. Fostradamus on November 28th, 2007 05:12

    Fjall af kartöflumús

  4. maggabest on November 28th, 2007 10:19

    Var þetta ekki "mating call" Chuck Norris í Code of silnence?

  5. Gísli Hjálmar on November 28th, 2007 11:34

    Það eina sem ég veit, er að ég veit ekki neitt!

  6. siggi on November 28th, 2007 12:25

    Nei, þetta er ekki Electric Dreams, skemmtilegt að þú skulir nefna þá mynd. Nú sönglar í hausnum á mér titillag þeirrar myndar. Gjörið svo vel: Phil Oakley - Together In Electric Dreams. Kötturinn sem tekur reglulega hús á mér heitir nú Þórkatla, í höfuðið á tannlækninum mínum.

  7. siggi on November 28th, 2007 12:25

    Bytta Bytta Johnson er með þetta.

  8. siggi on November 28th, 2007 12:27

    Er ekki breik dans atriðið í þessu vidjói æðinsgengilegt?

  9. Hólmfríður on November 28th, 2007 15:49

    Það þarf náttúrulega ekki að nefna það aðég ein gat þetta eins og skot í vinnunni minni. Annaðhvort er ég systir þín eða algjör snillingur, nema að hvorutveggja sé.

  10. siggi on November 28th, 2007 20:07

    :)

  11. Soffía litla on November 29th, 2007 17:11

    Hey..Ég vissi hvað mynd...Og ég er örugglega yngst af ykkur..

    Það fyrsta sem kom í huga mér var Richard nokkur Dreyfuss að missa sig með kartöflustöppuna við kvöldmatarborðið hjá huggulegu, mjög svo amerísku fjölskyldunni sinni..

    Ein flottasta SCI FI mynd síns tíma að mínu mati..

    Yndisleg mynd sem ég verð að sjá aftur.

  12. Gústi feiti on November 30th, 2007 10:45

    Fyndið!! Stórmerkilegt ég er einmitt að hræra í risastórum potti af kartöflumús, langar helst að hella henni á gólfið og byrja að móta fjall á hádramatískann hátt úr henni.......minnir mig líka á Simon tækið sem var til á öllum betri félagsmiðstöðvum hér í den.

    Þakkir, og muna 10,11 0g 12 siggi