Hvar ertu nú?

December 22, 2007 12:12  

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Þetta æðisgengilega lag Gunnars læknis bergmálar í hausnum á mér. Þess ber að geta að mér og mínum vinum finnst Óttar Proppé kynþokkafyllstur allra karlmanna á Íslandi; Megas fylgir honum fast á eftir.

Comments

5 Responses to “Hvar ertu nú?”

  1. Hetjan on December 22nd, 2007 12:57 pm

    Alveg ÓTRÚLEGA gott lag.

  2. Júlli on December 22nd, 2007 10:41 pm

    Mjög hressandi lag og greinilega hressandi blogg hér á ferð.

  3. Baddi "bytta bytta Johnson" on December 22nd, 2007 11:51 pm

    Mér finnst Óttar Proppé án vafa einn alljótasti poppari landsins og gríðarlega tilgerðarlegur í öllu fasi, en fokk hvað hann er brilliant tónlistarmaður.

    Lagið hefði einfaldlega átt að vinna.

  4. maggabest on December 24th, 2007 2:00 am

    Baddi.

    Hann Óttar er mjög langt frá því að vera tilgerðarlegur. Hann þekkti ég þegar búðir voru lokaðar á Sunnudögum. Þegar enginn var heimabankinn og engum datt í hug að setja börn í bankaboli og hann þekki ég enn í dag. Óttar hefur alltaf verið eins og hann er og slíkt úthald í tilgerð hafa aðeins sýfillissýktir Frakkar -sem Óttar er ekki.
    Ég er viss um að þú þekkir hann ekki neitt. Því máttu halda þinni annars ágætu þverrifu í skefjum þegar það kemur að sleggjudómum um þennan prýðispilt.
    Hvað þig varðar þá finnst mér þú ágætur kæri Baddi litli. En þú ert samt enginn Óttar.

    Gleðileg jól!

  5. Fostradamus on December 24th, 2007 3:48 am

    Ég tek undir með Margréti, ég hef þekkt Óttar í rúm 20 ár. Og það er örugglega hægt að segja margt um hann, en að hann sé tilgerðarlegur er algjört kjaftæði, hann er einn mesti öðlingur og húmöristi sem ég hef kynnst. Og svo kynnti hann mig fyrir Louis De Bernieres, nokkuð sem ég verð honum ævinlega þakklátur fyrir.