Viðtöl við íþróttamenn

January 22, 2008 20:01  

Ef það er eitthvað umfram annað sem ég þoli ekki í íslenskum fjölmiðlum þá eru það viðtöl við liðsmenn boltaíþrótta. Leggjast þeir iðullega í óskiljanlegar útskýringar á því hvað þarf til að þeir nái betri árangri í sinni íþrótt.

“Já, við þurfum ekki annað en að herða okkur í sókninni. Já, þýðir ekkert annað. Annað er bara síðasta sort. bla bla bla bla”

Ég grínast ekki, þegar ég segist fá slæmsku í mallakútinn minn þegar ég heyri í þessum mönnum. Það er þó alveg á jaðrinum að ég geti haft skoðun á þessu, því það er fátt í heimi hér sem ég hata jafnmikið og boltaíþróttir. Já, það er gott að hata. Hata pata.

Comments

12 Responses to “Viðtöl við íþróttamenn”

  1. Fostradamus on January 22nd, 2008 20:52

    Þú ert að koma sterkur inn á kantinum núna Siggi, þétt sókn í blogginu, innsæi í leikinn og gott form. Mundu bara að vera harður í vörninni kallinn !

  2. siggi on January 22nd, 2008 21:02

    Ég ligg í flensu og pestum öllum stundum, þannig að ég hef fátt annað við að vera en að skrifa, lesa og hugsa fallegar hugsanir.

  3. Ofurneminn on January 22nd, 2008 21:59

    Það er örugglega minni virkni í heilanum á boltaíþróttamönnum en þeim sem horfa á sjónvarp. Hehehehe... zzz

  4. katrín on January 22nd, 2008 23:33

    mikið er ég fegin, eftir þessar blammeringar, að minn leikur inniheldur ekki bolta.. heldur kork með fjöðrum á..

    og er heldur ekki liðsíþrótt..

  5. Hetjan on January 22nd, 2008 23:44

    Ég HATA strumpa!

  6. Pétur G on January 22nd, 2008 23:55

    Þar sem ég elska samlíkingar þá langar mig að líkja því að þú sérst farin að fylgjast með íþróttafréttum saman við vímuefnafíkil sem gengur á milli apóteka til að kaupa sér parkódín, það er s.s mál að linni og tímbært að hugsa sinn gang.

  7. siggi on January 23rd, 2008 00:33

    Ég skil ekkert hvað þú ert að tala um. Parkódín hvað. Ertu farinn að éta Parkódín?

  8. Hetjan on January 23rd, 2008 11:01

    Parkódín er væmið drasl. Koffínátín aftur á mótið...það er miklu betra!

  9. Pétur G on January 23rd, 2008 11:07

    ég verð að taka undir það herra Hetja, það gefur lífinu skemmtilegan lit að ofskammta sig með koffínátíni, eitthvað sem ég myndi taka fram yfir íþróttafréttir á hverjum degi!

  10. siggi on January 23rd, 2008 13:54

    Töffaraskapurinn sem fylgir því að vera uppgjafafíkill, malandi í sífellu með eftirsjá um hina fornu frægð, dó fyrir mörgum árum með Bubba. Nei, vildi bara koma þessu að. Ég er annars bara hress.

  11. Hr.Hákon on January 23rd, 2008 14:26

    Er Bubbi dáin?

  12. siggi on January 23rd, 2008 14:30

    Já, hann er dáinn.