Hugsuðurinn

January 25, 2008 19:01  

monkey.jpg

Fólk sem lætur mynda sig í þessari stellingu, er einfaldlega ekki treystandi. Eiga þarna í hlut svokallaðir Sukkópatar og Mónólókar. Stórhættulegir og lítið annað að gera en að hlaupa á brott, eins og fætur toga, áður en þeir sjúga úr manni lífslöngunina með óþolandi kjaftablaðri og sjálfumgleði sem ekki einu sinni Jesúbarnið myndi fyrirgefa. Verið vakandi fyrir þessari tegund manna, því þeir leggja kapp á að fylla ykkur af allskonar fasískum óþverraskoðunum, sem ganga út á tortímingu ástarinnar. Ef ég væri andstyggilegt svín, setti ég beinan tengil á þessa menn, en þar sem ég er sérstakur talsmaður ástarinnar læt ég það ógert. Ég vil þó sérstaklega vara við ormagryfju moggans, en einnig ber mér skylda að upplýsa að sumir þeirra hafa slæðst inn á lista hjá blogg.gattin.net .

———-

Yfir í aðra sálma.

Þessi útlistun doktorsins er undurfalleg:

Mér sýnist aðallega blóðlaust fólk með uppþornuð kynfæri kalla lætin í Ráðhúsinu “skrílslæti”.

Comments

8 Responses to “Hugsuðurinn”

  1. Linda María on January 26th, 2008 1:18 am

    Hvað skildu margar grúppíur vera tilbúnar að fórna lifrinni í sér til að láta S&H mynda sig í sleik við Tommy Lee?

  2. Pétur G on January 26th, 2008 5:56 am

    Hver ætti svosem að vilja lifrina úr þeim?
    og hversvegna ættu þær að vera tilbúnar að fórna úr sér líffærum þegar það dugar að þær sýni á sér mjólkurkirtlana?

  3. Linda María on January 26th, 2008 7:46 am

    Skv. yfirlýsingum fyrrverandi eiginkonu hins síbernska TL(og sú hefði verið gulltryggð ef brjóstvörnin dygði)smitaði hann hana af lifrarbólgu C.

    Því mun óráðlegt að eiga í vessaskiptum við manninn.

  4. siggi on January 26th, 2008 2:09 pm

    Er TL hugsuður? Allavega, einhver þarf að taka það að sér að fara í sleik við allar þessar grúppíur, það er nokkuð ljóst og hver er betur til þess fallin en sleikjupinninn Tommy Lee?

  5. Linda María on January 26th, 2008 3:41 pm

    Ég held að það sé hægt að klína flestu öðru á TL - þó svo að ég verði að viðurkenna að honum hefur tekist að koma ár sinni vel fyrir borð og orðið mikið úr litlu.

    Hvað vitum við sossum?

    Honum tekst alla vega að lifa á sjálfum sér.

  6. Pétur G on January 26th, 2008 3:54 pm

    Ég er forviða á hvað Linda býr yfir mikilli þekkingu um þennan glaumgosa.

  7. Linda María on January 26th, 2008 11:18 pm

    Ég verð að játa að þekking mín á litríkri ævi T.L. er að mestu fengin úr gömlum slúðurblöðum á biðstofum víðsvegar um borgina.

    Ég sá TL í sjónvarpinu þegar ég var eitt hjarðdýranna sem vakti um nætur og ýtti á takkann sem stóð á "Vote for Magni".

    En þegar þú minnist á það þá sé ég að það er ekki eðlilegt að miðaldra, íslensk húsmóðir viti of mikið um T.L.

  8. Pétur G on January 27th, 2008 12:32 am

    Já ef ég væri í þínum sporum þá myndi ég bara halda þessari þekkingu út af fyrir mig!