Þetta er ný bóla!

November 13, 2004 19:11  

Ég neyðist til að boða þeim sem áttu von á mér á dansiballstaðinn Nasa í kvöld forföll mín. Það vill svo óskemmtilega til að ég er með stóra bólu á kinninni og get ómögulega farið út úr húsi við þessar aðstæður.
Þið verðið bara að dansa án mín.
Ég ætla þess í stað að sitja heima og horfa á Davíð Oddson tala um veikindi sín í þættinum hans Gilla Martin.

Comments

2 Responses to “Þetta er ný bóla!”

  1. Frú on November 13th, 2004 19:49

    Ég hugsa mjög mikið um útlitið.

  2. Pétur G on November 13th, 2004 23:03

    ég er frá mér af bræði yfir þessum svikum!