Sumar og hamingja

March 14, 2008 16:03  

Ég hef legið í Summertime útgáfum síðan í gær, og út af því að Fóstradamus vinur minn nefndi Devendra Banhart í athugasemdainfrastrúktúrindexdatabasakerfinu, - þykir mér við hæfi að kunngjöra bloggheimum þessa fínu og flottu útgáfu með þessum æðisgengilega söngvara. Hann er ekki þarna einn á báti, því þetta vidjó prýðir alveg sérstaklega hæfileikaríkur nærbuxnadansari. Hann dansar satt best að segja ekkert ósvipað undirrituðum.

Andskotans snillingar.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Comments

12 Responses to “Sumar og hamingja”

  1. Linda María on March 14th, 2008 18:37

    Ég,starði í forundran á skjáinn,reyndi að koma skipulagi á ringulreiðina sem Devendra Banhart olli innra með mér.

    Sonur minn kom hlaupandi út úr herberginu sínu, rak hausinn yfir skjáinn á fartölvunni,þar sem ég lá lömuð af tilfinningarótinu sem nærbuxnadansarinn þyrlaði upp í höfðinu á mér.

    Unglingurinn sagði: "I didn´t ask!!" og strunsaði að því búnu inn til sín og lokaði kyrfilega á eftir sér.

    Ég er búin að hrópa nafn hans nokkrum sinnum - án árangurs.

    Sigurður Þorfinnur, svona riðlar alnetið innviðum heilu fjölskyldnanna!

    Hvernig á þessi drengur nokkurn tíma að geta farið að persónuleikamótandi tilmælum mínum eftir þetta?

  2. Hetjan on March 14th, 2008 19:08

    Söngur og spil með miklum ágætum, en hvað er pointið? Allt þetta púður í hvaða point?

  3. siggi on March 14th, 2008 19:13

    Alvöruleysi, er að sjálfsögðu point-ið, enda alvöruleysi lykillinn að lífshamingjunni.

  4. Júlli on March 15th, 2008 00:42

    Heheh....frábært myndband og svar Sigga hér fyrir ofan er líka frábært.

  5. ingi on March 15th, 2008 09:59

    jesssdúddamía!
    Það munar ekki um það - jahérnahér! :)

    Þér eruð gullnáma, Sigurður - gullnáma!

  6. Linda María on March 15th, 2008 15:25

    ,,hann hlakkaði gríðarlega til að fá það upp í hendurnar´´...

  7. Linda María on March 15th, 2008 15:27

    ...guð refsaði mér samstundis með því að eyðileggja karrísósuna mína.

  8. G.org on March 15th, 2008 17:38

    Takk meistari, fyrir enn eitt gæðamyndbandið og flutninginn á þessu classiska lagi. Keep up the good work.

  9. maggabest on March 15th, 2008 22:31

    Siggi minn. Þetta eru hippar.

  10. Fostradamus on March 16th, 2008 02:01

    Ég nördaðist aðeins og það kom í ljós að um 700 tónlistarmenn/konur hafa flutt þetta ágæta lag, meðal annars Iggy Pop eins og mig minnti. Ég get þó ómögulega fundið hans ábreiðu af laginu neins staðar. Ég á þetta einhvers staðar í fórum mínum heima.

  11. Bytta bytta Johnson on March 16th, 2008 15:02

    Man vel eftir þessari útgáfu, dásamleg framsetning gerð á nýlista safni í Kulusuuk.

    Bassaleikarinn sagði í löngu löngu viðtali eftir þennan frumflutning gjörningsins, sem var ítrekað truflaður af einhverjum yndælis peðfullum heimamanni sem sífellt heimtaði peninga fyrir einhver fíkniefni, sem þarf vart að taka fram að enginn viðstaddra kannaðist neitt við, að þegar þeir sömdu verkið völdu þeir þetta lag einungis vegna þess að það væri það eina sem gæti mögulega fært þeim von í þessum viðbjóðslega heimi tískunnar.
    Verkið var sett fram snemma á síðustu öld til höfuðs Tommy H. og Joe Boxer sem höfðu þá einmitt háð harða markaðskeppni um yfirráð á nærbuxnamarkaði ameríkunnar.

    Já, hvar værum við án alvöru listamanna sem þora?

  12. Raxel on March 17th, 2008 15:21

    Dýrka Devendra og danshæfileikar stripparans alveg magnaðir, hef reyndar orðið vitni alloft af svipuðum danstilþirfum á 22 eða á galeiðunni í gamla daga. Ætla að gefa þessum dans nafnið TRANS.