Hvað er málið með hvað er málið?

Á google.com ef leitað er að “Hvað er málið?”, innan gæsalappa, skilar leitin 74,800 niðurstöðum. Ef gæsalappir eru notaðar í leit á google, veit leitarvélin að hún á eingöngu að skila þeim niðurstöðum þar sem leitarstrengurinn kemur orðrétt fyrir. Mér dettur því í hug að þetta sé ein ofnotaðasta og jafnframt hundleiðinlegasta spurning/upphrópun notuð í íslenskum texta á netinu.
Ég leitaði einnig að “málið er dautt” – sem er enn eitt ofnotað orðatiltæki – og skilar leitin 7,360 niðurstöðum. Hvað þýðir þetta annars? Hvaða mál er dautt? Afhverju er okkur keppikefli að drepa málið? Hvað gerði málið af sér?
Einu sinni sat ég kynningu hjá virðulegu fyrirtæki hér í borg. Sölumaðurinn, sagði 30 sinnum: “málið er dautt” og 20 sinnum: “on the fly.” “On the fly” skilar 15,500,000 niðurstöðum.

Ef einhver veit um íslenskt orðatiltæki, sem skorar hærra en “Hvað er málið?”, þá væri gaman að heyra af því.

Posted on March 30, 2008 at 00:25 by siggi · Permalink
In: Veflókar

21 Responses

Subscribe to comments via RSS

  1. Written by Linda María
    on 2008/03/30 at 00:46
    Permalink

    Hvað með það? Sem skilar 70.400 sem btw er skráð ca 15 milljón sinnum OMG! Uppá 72.200.000
    Kræst! 17.700 og svona festist maður….

  2. Written by Pétur G
    on 2008/03/30 at 01:11
    Permalink

    “Verum í bandi” skorar hæst á listanum mínum yfir hallærisleg orðatiltæki ….. fokking ömurlegt.

  3. Written by siggi
    on 2008/03/30 at 01:32
    Permalink

    Þið verðið að nota gæsalappir, annars er lítið að marka niðurstöður.

  4. Written by Júlli
    on 2008/03/30 at 01:32
    Permalink

    “Sjáumst kall” er líka leiðindi og móðgandi

  5. Written by katrín
    on 2008/03/30 at 01:45
    Permalink

    ég hef reynt að temja mér að segja heldur “hvert er málið?”

    mér finnst það málfræðilega réttara
    ;)

  6. Written by Pétur G
    on 2008/03/30 at 11:04
    Permalink

    ekki má gleyma “hvað er í gangi” en það skilar 51.000 niðurstöðum…..

  7. Written by Linda María
    on 2008/03/30 at 13:03
    Permalink

    “Hvað með það?” sem skilar 70.400
    sem “btw” er skráð ca 15 milljón sinnum
    “OMG!” Uppá 72.200.000
    “Kræst!” 17.700 og svona festist maður….

    Þetta eru 4 leitarorð!

  8. Written by siggi
    on 2008/03/30 at 18:42
    Permalink

    “Hvað með það?” – 31,500
    “btw” – 115,000,000
    “omg!” – 70,100,000
    “Kræst” – 9,060 á íslenskum síðum
    “Kræst!” – 21,900 globally, en þá skilar google líka niðurstöðum þar sem “Kraest” kemur fyrir.

  9. Written by Hetjan
    on 2008/03/30 at 19:09
    Permalink

    Það skorar ekki hærra en það er athyglisvert að skoða “karlmenn eru aumingjar” vs. “konur eru aumingjar”. Það ætti að gefa okkur einhverja hugmynd um það hvort kynið bloggar meira…

  10. Written by Pétur G
    on 2008/03/30 at 21:25
    Permalink

    já eða það að karlmenn séu bara meiri aumingjar?

  11. Written by Linda María
    on 2008/03/30 at 21:25
    Permalink

    “Hvað með það?”

    AltaVista found 38,300 results

    Þetta var kl. 21.15

    “btw”

    AltaVista found 189,000,000 results
    Þetta var kl. 21.16

    “kræst!”

    AltaVista found 23,000,000 results
    Þetta var kl.21.17

    “omg!”

    AltaVista found 203,000,000 results
    um kl.21.18

    “OMG!” skilar sömu niðurstöðum kl.21.19

    “drepa tímann” skilaði 10.600 niðurstöðum kl.21.21

    Svo er að sauma þetta í refilsaum og leigja sér gallerí…

  12. Written by Linda María
    on 2008/03/30 at 21:35
    Permalink

    …réttara sagt: Sauma þetta í refil.

  13. Written by agust
    on 2008/03/30 at 21:37
    Permalink

    Sigurður minn ég held að þú hafir “drepið málið” nú með þessu bloggi þínu.

  14. Written by Allý
    on 2008/03/31 at 15:36
    Permalink

    “Knús og kram” er viðbjóðslegur frasi sem mér hefur fundist ofnotaður nú um mundir en hann skilaði mér til undrunar einungis 5.550 niðurstöðum.

  15. Written by Danni
    on 2008/03/31 at 18:25
    Permalink

    Ég trúi þessu ekki, er til fólk sem notar Altavista?
    Er þá ekki bara kíkt á leitarniðurstöðurnar á Netscape á meðan að liðið er eitthvað að rugla á #Iceland á IRCinu í bakgrunni?

  16. Written by siggi
    on 2008/03/31 at 22:32
    Permalink

    Ég hef aldrei heyrt þetta áður Allý. Þetta er sannkallaður viðbjóður. Hvað á þetta annars að þýða? Jú, ég veit hvað knús er, en hvað merkir kram í þessu samhengi? Ég læt fylgja með orðabókarskýringu:

    kram -s HK

    (um haldlausan óþarfavarning) varningur, vefnaðarvara
    falla (passa) í kramið (niðrandi merking) hæfa e-u, samlagast

  17. Written by Linda María
    on 2008/03/31 at 22:48
    Permalink

    Ég er algerlega heyrnarlaus á því eyra sem snýr að Danna. Eða blind á því auga osfrv.

    Knús og kram er stökkbreyting úr “puss och kram” sem þýðir koss og faðmlag á sænsku.

    Svo verður kossinn að knúsi og faðmlagið að kram(araumingja).

  18. Written by Linda María
    on 2008/03/31 at 22:54
    Permalink

    Auk þess langar mig að benda á fáránlega afbökun á “no pain,no gain” sem ég hef nokkrum sinnum rekist á :”no pain,no game”. Lenti nánast í slagsmálum við góða vinkonu mína sem hafði þessa speki úr 12 spora batteríinu.
    Svo sá ég þetta skrifað í athugasemdir á ágætri síðu – af fyrirmyndar nemanda sem kann meira að segja að passa ljón.

    Og þá dettur mér í hug: Svo lengist lærið sem lífið…

  19. Written by lipurta
    on 2008/04/01 at 00:42
    Permalink

    “popp og kók” ógeðslegt!

  20. Written by Baddi "bytta bytta Johnson"
    on 2008/04/01 at 22:15
    Permalink

    Uppáhalds leitarvélin mín þessa dagana er leitin inni á síðu Eskils. Eftir að hafa lesið þar í gegnum tug síðna um hversu frábærir forritarar eru þar getur maður prófað að slá inn í leit: “góðum forritara” og fær þá eftirfarandi svar: http://eskill.is/Leitarnidurstodur?SearchString=g%C3%B3%C3%B0um+forritara

  21. Written by zeranico | Allir í bátana
    on 2008/04/05 at 20:03
    Permalink

    [...] í andstæðu sína eins & ég gerði þarna. Eftir að gúgla það eftir þeim aðferðum sem Þingholtsvésírinn kenndi mér sé ég að ég virðist vera eini maðurinn í öllu landinu sem hef ritað þetta [...]

Subscribe to comments via RSS