Það er ekki ég, barnið mitt

April 24, 2008 21:04  

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Joan Baez er í þessu myndbandi jafn yfirlýsingaglöð og þóttafullur moggabloggari. En mikið ægilega er hún sjarmerandi. Hér má sjá hana syngja lag Bob Dylans: It aint me. Í kynningu á laginu, lýsir hún því yfir að hún sé mótfallin hjónabandi. Ekki líða þó nema þrjú ár frá þessum tónleikum þartil hún kynnist David Harris, sem er afskaplega aðlaðandi ungur maður. Hún fer í sleik við hann og stuttu síðar kastar hún viðhorfum sínum gagnvart hjónabandi á hauganna og giftir sig. Nokkrum árum síðar skilur hún við Harris og ákvarðar að hún verði að eilífu ein. Hún hefur til dagsins í dag, ekki gift sig aftur.

Comments

6 Responses to “Það er ekki ég, barnið mitt”

  1. Pétur G on April 24th, 2008 22:08

    Einhver sagði mér að það væri þroskamerki að skipta um skoðun.
    Sá hinn sami hefur samt eflaust bara verið að nota það sem afsökun til að geta hent sínum viðhorfum á haugana .....

  2. siggi on April 24th, 2008 22:26

    Nei, að skipta um skoðun gerir menn óáreiðanlega. Þeir sem tileinka sér moggabloggíska skoðanafestu uppskera meiri gleði, ást og hamingju. Svo eru konur vitlausar í menn sem skipta aldrei um skoðun. Það er svo karlmannlegt sjáðu til.

  3. Baldvin da'bytt on April 25th, 2008 11:13

    Mér finnst nú þessi útgáfa af laginu alltaf sætust, eitthvað svo rómantískt á sama tíma og þau voru nú ástar turtildúfur Bandarísku þjóðarinnar á sama tíma.
    http://www.youtube.com/watch?v=kn1xTKfSPWQ&feature=related

    En já, engin spurning, bara hommar og veikgeðja konur skipta um skoðun Sigurður, engin spurning.

  4. Pétur G on April 25th, 2008 11:18

    Hvort eruð þið Siggi þá Baddi?

  5. siggi on April 25th, 2008 11:18

    Þau voru svo falleg.

  6. Linda María on April 25th, 2008 13:40

    Veikgeðja gleðimenn vs. geðveikar gleðikonur.