Apr
25
Mary Poppins og rækjusalat
April 25, 2008 21:04

Ég hef verið sérstaklega heimilislegur í dag. Snurfusað og puntað. Sett í vél. Lagað hummus. Keypt í matinn. Svo brá ég mér út með vaskafat og þreif eldhúsgluggana. Nú sjá allir frá götunni þegar ég á adamsklæðunum stíg trylltan dans við tónlist úr Mary Poppins, smurður rækjusalati frá toppi til táar. Lífið er prýðilegt á Óðinsgötunni.
Comments
4 Responses to “Mary Poppins og rækjusalat”
Já er partí í kvöld?
Finnst þér þetta ekki falleg mynd af ævintýragarðinum Pétur? Hún er tekin fyrr í kvöld út um nýþveginn eldhúsgluggann þegar klukkuna vantar aðeins nokkrar mínútur í 9.
Þetta er ynnnddislega falleg mynd Siggi!
Jú hún er það óneitanlega, það er einhver óútskýranleg mystík yfir henni allri!