Mary Poppins og lyfjafíkn

April 30, 2008 14:04  

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Einu sinni át ég reiðinnar býsn af pillum í öllum regnbogans litum. Það þótti mér prýðilegt. Ég átti pillur við öll tækifæri: ef ég var leiður, ef ég var reiður, ef ég var hress, ef ég var að fara á ættarmót, ef ég dansaði diskó, ef ég fór í skóla, ef ég hætti í skóla, ef ég fór til útlanda - sama á hvaða vígstöðvum ég þurfti að standa mig(eða ekki), alltaf var til pilla eða skammtastærð sem gerðu mig að hæfari ræðara í lífsins ólgusjó. Færustu sérfræðingar í heilsugeiranum aðstoðuðu mig í að éta mig í gegnum nokkur bindi af eftirlætis bók þeirra tíma: lyfjabókinni - þar til einn daginn fannst mér ég vera fullmettur og sagði skilið við lyfjaða tilveru mína. Ákaflega velviljað fólk hjálpaði mér í gegnum mestu erfiðleikanna, með að skófla í mig fleiri pillum - en þegar á leið urðu skammtarnir minni, þangað til á endanum stóð ég uppi berstrípaður. Sveittur og skjálfandi söng ég: “a spoon full of sugar, helps the medicine go down.”

Það þarf enginn að halda aftur af sér í söng, því með myndbandinu fylgir lagatexti. Allir saman nú!

Comments

13 Responses to “Mary Poppins og lyfjafíkn”

  1. Pjétur G on April 30th, 2008 3:51 pm

    Mary er augljóslega á trippi og það sem verra er hún er búin að dópa aumingja börnin, þvílíkur hryllingur.

    Ó mig auman

  2. Linda María on April 30th, 2008 4:44 pm

    Er ykkur ekkert heilagt?

    Eitt er að öfundast útí nágranna sína fyrir að lifa kynlífi - en að míga yfir Mary Poppins er allt, allt annað!

  3. siggi on April 30th, 2008 4:54 pm

    Ég ólst upp með þessari prýðiskonu og hef ekki beitt þvagfærunum á hana, hvorki fyrr né seinna. Þú ert farin að hljóma eins og móðursjúkur mogglingur!

  4. Linda María on April 30th, 2008 4:59 pm

    Það að taka ekki upp hanskann fyrir Jane og Michael Banks, þegar vegið er að mannorði þeirra á þinni bloggsíðu, jafngildir krónískum þvagleka í þeirra garð!

  5. Pjétur G on April 30th, 2008 5:03 pm

    æj góða Linda fáðu þér eina róandi!

  6. Linda María on April 30th, 2008 5:57 pm

    Mér sýnist á ofanskráðu að það sé tiltölulega skammgóður vermir.

    En þú framkallar örugglega í vel loftræstu?

  7. siggi on April 30th, 2008 6:06 pm

    Reynið að syngja þessa ólund úr ykkur, annars klikkast ég. Já, heyrið þið orð mín og takið nótis.

  8. Linda María on April 30th, 2008 6:14 pm

    Hann fyrst! :)

  9. Bergþóra on May 1st, 2008 4:16 am

    Aðfinnslur - það er frábært orð yfir komment.

    Góðar kveðjur frá B.

  10. Allý on May 1st, 2008 11:56 pm

    Enn og aftur Sigurður eru það skrifin mín sem veita mér mestu gleði dagsins.
    Og það er vel meint þrátt fyrir að dagurinn minn hafi farið fram inni á daunillri lesstofu að læra stökkbreytingar í krabbameinum

  11. Allý on May 1st, 2008 11:56 pm

    Og þetta áttu að vera skrifin þín, ekki mín.

  12. siggi on May 2nd, 2008 12:26 am

    En fallegt af þér að segja. :) Mér finnst sömuleiðis gaman að lesa þig, nema þegar þú skrifar um fótbolta, þá garga ég.

  13. siggi on May 2nd, 2008 12:33 am

    Já, og svo fer það fyrir brjóstið á mér þegar þú póstar myndum af þér allsberri í heitri kerlaug. Ekki misskilja mig, það er ekkert að þér líkamlega, þú ert heltönuð og útúrmössuð og allt það, ég hef bara aldrei skilið þessa netstrípiþörf.