Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Einhverjir vilja halda því fram að sólblóm vaxi ekki í náttúrunni hér á norðurslóðum - en það er mikill misskilningur. Myndbandið tók ég á kvöldgöngu fyrir sunnan skítalæk. Kannast einhver við húsið?

Comments

17 Responses to “Það vex eitt blóm fyrir sunnan skítalæk”

  1. Linda María on May 18th, 2008 6:12 am

    Þett er munaðarleysingjahælið sem ég ólst upp á. Amma mín var matráðskona þarna á æskuárum mínum. Það var létt starf og fljótunnið og hún hafði þvi nægan tíma til að segja mér og vistbörnunum sögur af hamingjunni sem blómstraði í hverju húsi í næstliggjandi bæ. Ég minnist þess að hafa átt erfitt með að sofna vegna ekkasoga og garnagauls sem oftar en ekki bárust frá svefnsalnum ...

  2. Steini Bjarna on May 18th, 2008 6:41 am

    Ekki er þetta Vinnuskólinn þar sem þið Sveinn Sverrir áttuð góðar stundir? Ef svo er þá er hann verr farinn en ég hélt nema þetta sé gömul mynd.

  3. ka on May 18th, 2008 10:32 am

    þetta er fallegasta bygg á kh hæli, þar sem elli og brjánsi slógu í gegn með frábæru atriði.
    unnnur

  4. siggi on May 18th, 2008 12:28 pm

    Húsið við Fífuhvammsveg er vel við haldið. Það hýsir ennþá Vinnuskólann, en er held ég leigt út á veturna. Ég hjóla þarna framhjá stundum. Þú ættir að sjá skítalækinn, hann hefur verið hreinsaður upp og nær Hafnarfjarðarveginum hefur verið reist við árbakkann garðhús í ammrískum stíl.

    Þetta er gamli berklaspítalinn á Kópavogshælissvæðinu. Annars er verið að rífa hús á þessu svæði. Deild 1 og 2 hafa verið jafnaðar við jörðu. Þetta hús held ég að sé friðað.

  5. Hjördís on May 18th, 2008 4:15 pm

    Hvað er með þig og þessi sólblóm. Ertu með eitthvað sólblómablæti.

  6. siggi on May 18th, 2008 7:22 pm

    Já, ég er með svokallað sólblómafetish. Sumir elska að setja á sig bleyju, ég skreyti mig og umhverfi mitt með sólblómum og kemst umsvifalaust í stuð.

  7. maggabest on May 18th, 2008 11:18 pm

    þetta er rétt hjá Unni... Önnöððð, önnnöððð...
    atriðin í Sódómu voru tekin upp akkúrat í þessu fína fína húsi sem er að grotna niður í boði Kópavogs.

  8. Linda María on May 19th, 2008 7:16 am

    Ég sé núna aðég fór húsavillt. Ég hélt mig bera kennsl á sólblómið.

  9. sisilly on May 19th, 2008 8:07 am

    is this the house in westubaer? baci a gummilato

  10. siggi on May 19th, 2008 4:24 pm

    This is the house in the west of Kópavogur. baci baci a Tittina di Luna

  11. Maggav on May 19th, 2008 11:01 pm

    Það er gaman að þér! Þú þarna sprellikall!

  12. Sævar on May 20th, 2008 10:06 am

    er þetta ekki gula húsið?

  13. Steini Bjarna on May 21st, 2008 10:01 pm

    You had me Going South buddy.

  14. siggi on May 22nd, 2008 9:33 am

    Er þetta úr Hitcher?

  15. Steini Bjarna on May 22nd, 2008 8:41 pm

    Nei en góð ágiskun samt. Þetta er bara uppúr sjálfum mér, hugsanlega vísun í að "go south" þýðir stundum að villast eða hafa rangt fyrir sér. Ég tók þig full bókstaflega að fara suður fyrir læk. En Hitcher er klassísk mynd.

  16. Steini Bjarna on May 24th, 2008 11:48 am

    Þú hefur trúlega verið á sprellanum, þú þarna sprellikarl, að taka myndbandið og trúlega gert nokkrar Müllersæfingar í leiðinni.

  17. siggi on May 24th, 2008 7:36 pm

    Jú, ég hef það fyrir reglu að bera mig, þegar ég er á þessum slóðum.