Kominn í höfn

July 1, 2008 22:07  

Langskemmtilegast finnst mér að lesa tímaritagreinar um fólk sem einu sinni var ömurlegt, en hefur undið sínu kvæði í kross og er orðið framúrskarandi. Það gefur mér von um að ég geti gert slíkt sama. Greinarnar eru afar innspírandi, oftast um einhvern sem hefur átt í meiriháttar erfiðleikum, tildæmis verið hrikalega feitur, og misst ósköpin öll af kílóum með hjálp nýstárlegs megrunarkúrs. Eða einhver sem var ægilega feitur og fór í spinning, og er núna mjór og eftirsóknarverður. Svo eru vinsælar greinar um fólk sem var einu sinni ljótt, en hefur með hjálp nýrra aðferða, fríkkað heilan helling. Og ekki má gleyma þeim sem átu heilu fjöllin af allskyns lituðum pillum, en eru hættir því og farnir að trúa á Jesú Krist.

Ég verð þó að segja að mér þykir mun fýsilegra að bryðja pillur, heldur en að elska Jesú Krist, sem sennilega var aldrei til - og ef valið stæði á milli þess að lifa í blekkingu pilluáts og að ljúga sjálfan mig uppfullan af Jesú, þá tæki ég pillurnar fram yfir.

Rétt er að taka það fram að ég þarf ekki að sækja í neinn félagsskap til að mega hafa þessi viðhorf!

En greinarnar eru gefandi, sérstaklega fyrir mann eins og mig sem leitast eftir að skilja betur þessa súru tilveru. Og það er svo einkennilegt, að tilvera mín verða einungis súrari eftir því sem árin verða fleiri. Er ég þó alltaf allsgáður, hugsandi fallegar hugsanir, bakandi spelt brauð og lesandi uppbyggilegar bækur.
Fólkið, sem er alveg hætt að vera ömurlegt, en er þess í stað orðið frábært, fá auðtrúa hrekkleysing eins og mig til halda að það sé raunverulega hægt að komast í höfn í þessu lífi. Að ég geti fetað í fótspor þeirra sem, hafa fattað lífið og uppskorið hamingju sem endist, þangað til í mér hryglir. Það eina sem ég þarf að gera er að missa 50 kíló, finna góða konu, fara í kynskiptaaðgerð, sprauta í mig Botox, klæðast réttu fötunum, taka réttu trúnna, þekkja rétta fólkið og þá þarf ég aldrei aftur að gubba í lífsins ólgusjó.

Ég á annars afmæli á næstu dögum. Mikið væri nú fallegt ef einhver gæfi mér eitt stykki Hummer - það er hægt að fá þá á svo fínu verði hef ég heyrt. Flestir þeirra sem í góssentíð Íslands sigldu í höfn/keyrðu í hlað, á þessum glæsibíl, eru að reyna að losna við þá.

Comments

19 Responses to “Kominn í höfn”

  1. G.org on July 1st, 2008 11:55 pm

    Já, svona er þetta Sigurður, þetta líf er ekkert einfalt, allt of mikið að gera og allt of mlítill tími til þess að gera Það.

    En þú ert nú svoddan snillingur, það eina sem þú þarft að gera er að vera Þú :)

  2. G.org on July 1st, 2008 11:56 pm

    P.S. til hamingju með stór-afmælið sem fer bráðum í hönd.

  3. siggi on July 2nd, 2008 12:36 am

    Við erum nú sami árgangur og hvorugur okkar á stórafmæli. En takk samt, æðisgengilega.

  4. Hjördís on July 2nd, 2008 1:06 am

    Oj bara, hummer þú ert algjörlega fallinn í áliti.

  5. Þórunn on July 2nd, 2008 11:25 am

    Til hamingju með afmælið og Hummerinn sem einhver mun örugglega gefa þér í afmælisgjöf!

  6. K on July 2nd, 2008 11:47 am

    Á Hummer til Twin peaks????

  7. Kristleifur on July 2nd, 2008 4:18 pm

    Já, tek undir með G.orgi, þakkaðu Guði fyrir hvað þú ert mikið séní.

  8. siggi on July 2nd, 2008 6:38 pm

    Þakk fögur orð í minn garð. Ég roðna niður í rassgat og fer allur hjá mér.

  9. G.org on July 3rd, 2008 4:39 am

    Til hamingju með daginn, skemmtu þér vel og ég vona að þér verði gefinn Hummer :) og eitthvað fleira skemmtilegt í afmælisgjöf.

  10. Hjördís on July 3rd, 2008 11:05 am

    Til hamingju með afmælið.

    Reyndar geta svona ég var feitur en nú er ég fit sögur farið út í leiðinda bull og endurtekningar. Meina sjáiði bara Gauja litla. Hvað hefur hann komið oft í séð og heyrt til að segja að hann sé í átaki og ætli að fá aðra með sér. Meina eftir viðtal númer fimm þá er manni farið að vera nokkuð sama, dæmið er greinilega ekki að virka. Sama má segja um Rut Reginalds sem leit áður út eins og venjuleg kona en lítur núna út eins og Birgittu dúkkan.

    Ég elska samt svona fyrir eftir þætti, extreme makeover og svona.

  11. Kristleifur on July 3rd, 2008 11:09 am

    Ég fékk mér líka afmælishest í gær. Ég skellti upp úr af bragðgæðum, og hvað ég var valdsmannslegur að troða bleiku holdinu ofan í þrútið vélindað á mér. Lol.

  12. Linda María on July 3rd, 2008 11:13 am

    Vingastu við þessa menn á læknabiðstofum, Sigurður Þorfinnur?

  13. ka on July 3rd, 2008 12:35 pm

    hvernig Hummer villtu ??

  14. katrín on July 3rd, 2008 4:48 pm

    http://www.t24.is/frett/150

    datt í hug þú hefðir gaman að þessari lesningu
    getur sest niður með kaffi og biskottí og hlegið háum vondukalla hlátri yfir tapi ríku mannanna

  15. siggi on July 3rd, 2008 6:43 pm

    Æ, nei Katrín. Ég er ekkert að fara að hlakka yfir þessu.
    Mér finnst þó grátbroslegt þegar menn, sem vaðið hafa uppi með hroka og yfirgang, fá að kenna á þeim lögmálum sem mér virðast vera í gangi í lífinu: Það sem fer upp, kemur aftur niður. Fólk sem ofmetnast og verður of roggið, fær yfirleitt að súpa seyðið af því síðar meir. Ég er bara guðs lifandi feginn að hafa ekki keypt íbúð á þessum tíma, eins og ég ætlaði mér.

  16. katrín on July 3rd, 2008 7:29 pm

    ég var líka meira að grína
    en mér var samt hugsað til þín

  17. katrín on July 3rd, 2008 7:30 pm

    (og meðan þú keyptir ekki íbúð í úthverfi og ert ekki með yfirdrátt þá ertu nokkuð seif en það tvennt er svosum eitthvað sem maður á að halda sig frá hvort sem er..)

  18. Pjétur G on July 3rd, 2008 9:33 pm

    Spurning að ég fái að blogga hérna í aðfinnslusýstemið þitt meðan þú hefur mig múlbundinn:)

  19. Steini Bjarna on July 5th, 2008 9:03 pm

    Of course Mama´s going to help you over the Wall.

Leave a Reply