Avraham אַבְרָהָם

June 13, 2008 21:06  

Það ber helst til tíðinda hér á Óðinsgötunni að Avraham var settur í sturtu þar sem hann var af mikilli fagmennsku sápaður og sjænaður. Hann tók uppátæki nýtilkomins eiganda síns með miklu jafnaðargeði, sem kom nokkuð á óvart þar sem ég var búinn að gera ráð fyrir að þurfa að setja upp rafsuðuhanska.

25 þúsund króna átakið mitt gengur nokkuð vel. Mér hefir tekist að halda aftur af útgjöldum í nauðsynjavörur þessa vikuna og hef einungis eytt 3000.- krónum á 8 dögum. Ég sé þó fyrir meiri eyðslu í kvöld, þar sem ég er á leiðinni í kvikmyndahús með Frú Sigríði og ektakvinnu hennar að sjá þrekvirki mannsandans: Hulk hinn hrottalegi. Það eru svik við land og þjóð að fara í bíó án þess að hafa við hönd MSG kryddað popp og kóka kóla.

Svona er lífið á Óðinsgötunni.

Comments

6 Responses to “Avraham אַבְרָהָם”

  1. Gisli on June 13th, 2008 10:42 pm

    Samkvæmt myndinni vantar bakið á köttinn.

  2. siggi on June 14th, 2008 12:57 am

    Gísli, ekki sjá Hulk hinn hrottalega, þvert ofan í allar þínar væntingar er hún argasta rusl.

  3. Linda María on June 14th, 2008 7:44 am

    Þú og hann Avi þinn eruð æðislegir!

  4. Gisli on June 14th, 2008 8:17 am

    Hjúkk, ég sem var á leiðinni. Væntingar eru varasamar. Best að syngja "Faðir Avraham" í staðinn.

  5. Ásgerður on June 14th, 2008 9:56 pm

    Mig langar að eiga Avraham..

  6. Steini Bjarna on June 16th, 2008 6:54 am

    Þetta er ekki svo ólíkt thailensku letri, til hamingju með köttinn, þeir eru yndisleg dýr.