Hjólreiðatúr

June 28, 2008 21:06  

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Ég og minn kæri Ágústó Pinochet hjóluðum með vindinn í fangið upp á Kjalarnes í dag. Við rætur Esju sáum við þessa stóru ljótu auglýsingu frá bönkunum. Þar sem okkur báðum þykir álíka vænt um bankastofnanir, veltum við upp þeirri hugmynd að kúka í lúkurnar á okkur og maka á skiltið. En þar sem við vorum báðir búnir að stífla á okkur ristilinn með feitabollupakkningu af Snickers, var okkur hvorugum mál. Þar fyrir utan erum við svo sérstaklega vandir að virðingu okkar, enda fátt eftirsóknaverðara í lífinu en að njóta virðingu meðbræðra sinna.

Nú er það þannig í nútímanum að enginn getur pissað, kukkað eða njuggað saman á sér kynfærunum öðruvísi en það sé myndað og sett á netið. Hér er því myndband af Ágústó þar sem hann kannar rakaþol auglýsingaskiltisins.

Comments

7 Responses to “Hjólreiðatúr”

  1. Ágúst Loftsson on June 29th, 2008 2:25 am

    Þetta eru mínar 15 mín. í frægðarsólinni, ég vildi að það hefði verið parkeraður Hummer þarna líka þá hefði ég pissað á hann líka. Allaveganna á annað framdekkið.

  2. katrín on June 29th, 2008 12:20 pm

    ojjj hversu "fullur í miðbænum" af honum

    hef aldrei skilið fólk sem notar ekki klósett til að gera þarfir sínar í

  3. siggi on June 29th, 2008 1:41 pm

    Það eru nú ekki mörg klósett á þessum slóðum. Enda mun snjallara að míga á bankaauglýsingu en að míga á sig, er það ekki?

  4. K on June 30th, 2008 1:02 pm

    Twin Peaks ????

  5. katrín on June 30th, 2008 2:13 pm

    halda í sér þangað til næsta klósett finnst?

    er þetta sama og fulla fólkið í miðbænum á að segja áður en það mýgur á húsið mitt eða þitt "hva ekkert klósett hérna nálægt"

    mér finnstetta ógeð, sorrí

  6. Gisli on July 2nd, 2008 8:15 am

    Ég sé engan annan tilgand með þessu skilti annan en að míga á það. Ég tel að Ágústó hafi merkt sér þennan blett og mun ég sveigja hjá honum eftirleiðis.

  7. Unnur on July 3rd, 2008 12:27 pm

    Ég ólst nú sjálf upp við það að pissa útí náttúrunni og finnst fátt jafn skemmtilegt. Ef að bankarnir fara svo að setja einhver skilti í náttúrunna þá finnst mér ekkert að því að míga á þau líka. Það að míga útí náttúrunni og að míga á hús á Laugarveginum er tvennt ólíkt í minni bók.

Leave a Reply