indókína
Mér er minnistætt úr 6ta season af Sex And The City, þar sem Miranda er farin að lifa of einhæfu einsemdarlífi. Hún horfir alltaf á sömu sápuna, sækir vinnu og verslar mat í sömu chineese fast food búllunni. Hún fer að hafa það mjög svo á tilfinningunni að hún eigi sér ekkert líf og að starfsfólkið á matsölustaðnum sé mjög svo meðvitað um ástand hennar. Nú er reyndar svo fyrir mér gleðigjafanum komið að ég er farinn að kaupa mér mat á Indókína 4 sinnum í viku. Afgreiðslufólkið allt er farið að kannast við mig og fara viðskiptin fram með öllum aðilum brosandi illkvittnislega út í annað. Já það fer þar nærri að undirritaður sem eitt sinn var mikill djammgosi og “bóhem” er orðinn leiðindardurgur sem missir aldrei af uppáhaldssjónvarpssþættinum sínum og nærist á sama veitingastaðnum. Það er þó mér þvert um geð að viðurkenna að ég sé að bíða hér lægri hlut í lífinu.
on 2004/12/13 at 05:01
Permalink
Are you having sex in the city?
on 2004/12/13 at 17:23
Permalink
Sem sérlegur ráðgjafi þinn herra promazin legg ég til að þú virðir að vettugi þessa dónalegu athugasemd lesanda þíns hér að ofan.
Rúnar…..You´re Fired!!
on 2004/12/13 at 23:16
Permalink
Já ég var einmitt að furða mig á hversu heimakærir allir eru þessir dagana. Þú hefur greinilega komið af stað nýrri tískubylgju. Algjör trendsetter.
on 2004/12/14 at 06:42
Permalink
Since Zeranico commands I must oblige!
on 2004/12/15 at 17:23
Permalink
http://www.zeranico.com/?bID=839
on 2004/12/16 at 06:16
Permalink
Please save my soul Ziggy this is clearly a case of mistaken identity. ZZZZZZZZZzzomeone has mistaken me for somebody who actually cares! (Tí hí hí).
on 2004/12/16 at 18:28
Permalink
Souls er overrated!
on 2004/12/16 at 18:29
Permalink
“Souls are overrated” vildi ég sagt hafa fyrir gefið mér
on 2004/12/16 at 21:10
Permalink
Var verið að kalla á mig í mat?
on 2004/12/17 at 00:35
Permalink
Já og það er rauðvínslegin blóðmör í matinn!!1!