Whitetrash gettogether
Einn viðbjóðslegasti og tilgangslausasti vefurinn sem ég hef vafrað um upp á síðkastið er án efa http://www.yafro.com/. Hann minnir mig á mynd sem ég sá ekki svo alls fyrir löngu, en man ekki nafnið á – sem er reyndar mjög sjaldgæft því ég man yfirleitt alltaf nöfn á myndum. Myndin fjallaði um vonlaust fólk í USA sem gerði fátt eitt annað en að drekka áfengi og bera sig online. Tilgangsleysið og ömurleikinn í þessari mynd var alger. Þessi yafro.com vefur þjónar sama einskisverða tilgangsleysi. Þarna hefur þú kost á að skrá þig og senda inn myndir af sjálfum þér eða hverju svo sem þig fýsir að opinbera. Hinir notendurnir geta síðan gefið þér ummæli og bætt þér við í vinahóp ef þeim þykir þú vera kostagripur. Ummælin sem þessi lekgátar gefa ungum stúlkum með ómeðhöndlaða sýniþörf eru að sjálfsögðu hávísindaleg og svo sannarlega til eftirbreytni.
on 2004/12/22 at 19:45
Permalink
Stundum, og ég segi stundum, þá hef ég á tilfinningunni að þér hafið allt of mikinn tíma aflögu og óttast að hvernig þér drepið frítíma yðar eigi eftir að hafa geipilegar afleiðingar í för með sér hvað varðar andlegt heilindi. Hitt er þó öllu verra að meðan athyggli yðar virðist svo gjörla hverfa í átt að soranum þá svelltur heimurinn heilu hungri í vannæringu og skorti á uppfræðslu frá guðspjallamanninum Segörði sem hefur mátt til að breita vatni í rófusafa og lesbíum í heiðvirtar húsmæður í Hafnarfirði. Skömm væri ef öll ómenningi mundi hafa það í för með sér að hrun Íslenskrar menningar eins og við þekkjum hana eða höldum að hún sé eða hún mundi vera ef hún væri til…
on 2004/12/22 at 20:37
Permalink
ég veit satt að segja ekki hvort er verra lesbíur eða heiðvirtar húsmæður í hafnafirði, en ljóst þykir að einhver þarf að uppfræða skrílinn um sorann og fáir betur til þess fallnir en einmitt herra P!
on 2004/12/23 at 03:08
Permalink
Amen. En er þetta rétti vettvangurinn til slíkrar fræðslu?
on 2004/12/23 at 07:50
Permalink
ef ekki hér hvar þá spyr ég líkt og heimsk kona?
on 2004/12/23 at 08:22
Permalink
Skoðanir eru eins og skítur við getum ekki haldið þeim í okkur… En skíturinn er þó betri að því leitinu að flestir losa sig við hann í einrúmi og eru vonandi búnir að sturta honum út á hafsauga áður en næsti maður rambar in á herlegheitin. En Segörður aftur á móti er gullkálfurinn sjálfur og ég baðaði mig glaður í öllum hans skoðunum og þegar hann prumpar get ég ekki stillt mig um að færa mig nær.