Archive for the ‘Veflókar’ Category

Tortímandinn

Ég hef lengi velt því fyrir mér hvers vegna Tortímandinn, úr samnefndri kvikmynd, birtir sjálfum sér textaupplýsingar á ensku? Í hvaða tilfellum þurfa tölvur að lesa upplýsingar af sínum eigin skjá? Er þá ekki nóg að skjóta hann í augun? Þá getur hann ekki lengur unnið úr upplýsingum, leitað í gagnagrunni, gúgglað, [...]

Posted on January 29, 2012 at 22:34 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Skallameðal

Nýjasta nýtt í vísindunum er byltingarkennt meðal sem læknar einn þann ógeðslegasta kvilla sem þjakað getur karlmann: Alopecia – en það er stigvaxandi hárlos sem veldur með tíð og tíma skalla sem dregur viðkomandi félagslega til dauða. Sem er gott! Því enginn vill hafa neitt saman við mann með skalla að sælda. [...]

Posted on September 23, 2011 at 22:05 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Paul Simon, öldrun og dauði

Það snerti fíngerða strengi í mínu kórazóni að sjá myndband af Paul Simon flytja Sounds of Silence í New York 11. september síðastliðinn. Ekki þó vegna þess að athöfnin væri svo tilfinningarþungin og lagið svo fallegt, heldur vegna þess að Paul Simon sem eitt sinn var svo huggulegur og aðlaðandi er orðinn [...]

Posted on September 16, 2011 at 14:05 by siggi · Permalink · Comments Closed
In: Veflókar

La muerte

Nú er ég búinn að eiga heima á Spáni síðan í október á síðasta ári. Ég bý í litlu krúttlegu þorpi þar sem meðalaldurinn er 80 ár. Hér keppist fólk við að deyja. Þegar einhver deyr, er þartilgerðum bíl með gjallarhorni á þakinu keyrt um þröngar götur þorpsins og andlátið tilkynnt. [...]

Posted on September 8, 2011 at 17:46 by siggi · Permalink · Comments Closed
In: Veflókar

Leirmunir unnir úr dauðum mönnum

Alltaf er maðurinn að búa til bissness. Nú er hægt að fá leirmuni unna úr jarðneskum leifum látinna ættingja. Langflestir vilja eðlilega láta búa til úr sér styttu af Maríu mey eða Jesúm Krist. Eitthvað hátíðlegt. Það get ég skilið. Ég sjálfur vil að úr mér verði steyptur engill [...]

Posted on September 5, 2011 at 21:38 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Ernest Borgnine

Í dag varð mér hugsað til Ernest Borgnine, en hann er einn af afkastameiri leikurum kvikmyndasögunnar. Ég var að semja í hausnum á mér samtal á milli mín og hans ef leiðir okkar lægju saman. “Þú ert Ernest Borgnine!” segði ég sisona við hann, eins og ég væri fyrstur til að færa honum [...]

Posted on September 3, 2011 at 21:51 by siggi · Permalink · Comments Closed
In: Veflókar

Íslenskt hugarfar

Fyrir nokkrum árum í 101 Reykjavík fór ég á tónleika með hljómsveitinni Blonde Redhead. Þetta var á þeim tíma sem Íslendingar gengu um götur heimsins hnakkakerrtir vissir um að íslenskur ríkisborgararéttur væri ávísun á gæfu og vegsemd á öllum sviðum lífsins.
Í blábyrjun tónleikanna bað annar tvíburinn áhorfendur um að stilla reykingum í [...]

Posted on April 5, 2011 at 10:26 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Teboð

Fyrir 13 árum síðan ætlaði ég að verða gyðingur og skráði mig því í hebreskuskóla í Ísrael. Skólinn var á samyrkjubúi og þurfti ég ásamt þeim er hann sóttu að vinna baki brotnu fyrir mati og uppihaldi meðan við námum hið helga mál. Þar kynntist ég ungri stúlku frá Bretlandi sem var í [...]

Posted on November 4, 2010 at 19:08 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Kynlífslýsingar á facebook og hórurnar í Gandia

Undanfarna viku hefur geysað skelfilegur faraldur á facebook. Vinir og vandamenn hafa keppst við að senda út tilkynningar um hvar þeim þykir spennandi að eðla sig. Gunna frænka, sem er komin vel á sjötugsaldur og er spikfeit finnst tildæmis mjög æsandi að láta taka sig á eldhúsborðinu heima hjá sér. Ég hafði [...]

Posted on October 9, 2010 at 09:13 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Mér liggur ýmislegt á hjarta

Ég hef bara glatað getu minni til að koma orðum að því.

Posted on September 11, 2010 at 22:45 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Krúttin á Strikinu

Posted on August 28, 2010 at 15:19 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Spítalatungumál

Þegar ég vann á spítala töluðu þeir faglærðu vísindalegt tungumál, sem mér ómenntuðum starfsmanni þótti afar heillandi. Tungumálið, sem er internasjónal, ímynda ég mér að hjúkrunarfræðingar, læknar og sjúkraliðar læri upp í Akademíu, með stóru A-i. Ég hef alla tíð heillast af akademísku fræðimáli. Framandi orð eins og penis og vagína, borið [...]

Posted on July 13, 2010 at 21:41 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar