Archive for the ‘Æskuminningar’ Category

Skapgerð

Glitfíflum skreytt skapgerð mín var fullmótuð þegar ég var rétt liðlega 10 ára gamall, og ekki hægt að segja að hún hafi tekið stórkostlegum breytingum síðan. Flestar þær hugsanir sem ég hugsaði þá, hugsa ég enn þann daginn í dag; þær eru aðeins ruglingslegri, háværari og mun ómarkvissari. Prúður og indæll drengur, úr [...]

Posted on April 6, 2009 at 14:38 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Æskuminningar

Chiquitita

Þegar ég var krakki, þá heyrðist mér Abba syngja Siggi kýta. Kýta er annars steinbítsmagi, ekki að ég hafi vitað það þá. En hvað er í ósköpunum er Chiquitita?
Ég hélt aldrei upp á Abba. Ef ég var spurður, þá fannst mér fannst sú ljóshærða sætari. Ég var hinsvegar mikill aðdáandi Bee Gees [...]

Posted on August 21, 2008 at 21:45 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Æskuminningar, Veflókar

Draumahús

Af þremur húsum, þá hefur mig líklega oftast dreymt húsið á myndinni. Í þessu húsi sem stendur ennþá við Löngubrekku, ólst ég upp. Það er þó ekki svona glæsilegt í dag og garðurinn ber þess merki að engum hefur þótt vænt um hann í heila eilífð, en pabbi var mikill áhugamaður um [...]

Posted on June 7, 2008 at 03:41 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Æskuminningar, Veflókar

Myndin af Dorian Gray

Foreldrar mínir höfðu fyrir reglu að skipa mér fram á gang, þegar þeim grunaði að eitthvað hræðilegt ætti eftir að gerast í bíómynd kvöldsins. Man ég tildæmis eftir að hafa fengið að húka við lokaðar dyr þegar George neyddist til að drepa Lenny í Músum og mönnum. Sömuleiðis varð ég af atriðinu [...]

Posted on May 15, 2008 at 22:56 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Æskuminningar, Kvikmyndir, Veflókar

Ann Maxalikk

Þarna sit ég í sjónvarpsherberginu. Ég er ekki ýkja spenntur yfir dagskránni, en eins og sjá má á innfelldu myndinni er verið að flytja veðurfréttir. Ég skildi aldrei eitt né neitt í veðurfréttum. Fyrir mér hljómuðu veðurskýringar eins og kveðskapur vitstola manns: “Suð, suð, vestan, súld, rigning, norðanvindur, él, vestan, austan, stormur, Ann [...]

Posted on September 23, 2007 at 02:49 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Æskuminningar, Veflókar

They shoot horses don’t they.

Þá hefur það verið gjört opinbert, að ég er orðinn gamall kverúlant sem hefur dálæti á köttum. Enn og aftur dettur mér í hug titill á bíómynd sem ég sá þegar ég var krakki, hún hét They Shoot Horses Don’t They. Mikil átakasaga um par sem tekur þátt í maraþondanskeppni á kreppuárunum. [...]

Posted on September 22, 2007 at 13:25 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Æskuminningar, Veflókar

Arnheiður

Um daginn sagði ég dóttur minni sögu af mér þegar ég var nemandi í viðurstyggilegum Kópavogsskólanum. Ég hef verið u.þ.b tíu ára gamall, alveg fyrirtaks nemandi sem skaraði mjög svo fram úr bekkjarfélögum mínum. Krakkarnir sem voru með mér í bekk voru nefnilega langflestir jaðarfábjánar. Þannig að vera gáfum gæddur, gerði það [...]

Posted on July 17, 2007 at 22:16 by siggi · Permalink · 11 Comments
In: Æskuminningar, Veflókar

Húsið á sléttunni

Þá er mál til komið að verða sér út um öll season af Húsinu á sléttunni. Þetta sjónvarpsefni ólst ég upp með og ekki hægt að neita því að ég hafi orðið að betri manni fyrir vikið. Húsið á sléttunni telur 8 season sem erum u.þ.b. 160 klukkustundir af hreinræktaðri gamaldags gúddí gúddí góðmennsku. [...]

Posted on April 3, 2006 at 01:41 by siggi · Permalink · One Comment
In: Æskuminningar, Veflókar

Dahlia

Hér er svo fallegt blóm sem heitir dalía. Þess ber að geta að undirritaður ólst upp í dalíuhafi dauðans fyrir sunnan og norðan skítalæk. Pabbi sem var mikill áhugamaður um allskyns blómarækt sá til þess að við krakkarnir værum umkringd blómum og trjám í fallegasta garðinum í allri Löngubrekkunni. Enn þann daginn [...]

Posted on February 3, 2005 at 00:49 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Æskuminningar, Veflókar