Archive for the ‘Animation’ Category
Fleskljós frjálshyggjunnar
Ég stóðst ekki mátið. Megi elding ljósta mig.
In: Animation, Veflókar, Videoverk
Reynslusaga smokkalausu týpunnar
Hjartnæmar reynslusögur viðskiptavina holdljóss er upplífgandi lesefni. Karlmenn sem til þessa hafa ert kynfæri sín með skömm í sálinni, verða um það vísari að ekkert er eðlilegra en að leggja stund á runk, með nýstárlegum tólum og tækjum.
Prestur, ekkjumaður og smokkalausa manngerðin, segja opinskátt frá því hvernig hinn byltingarkenndi fleskljósrunkari, nýtist þeim bæði [...]
In: Animation, Veflókar, Videoverk
Reynslusaga prófasts með doktorsgráðu
Fyrir hrun, þegar menn runkuðu sig áhyggjulausir, var kynnt til sögunnar í fyrsta skipti á Íslandi þartilgerð sæðisútpungunarmúffa. Frægir íslenskir runkarar tjáðu sig hástilltir um runkmál og heimtuðu að fá að ræða um skökulinn á sér, án þess að vera úthrópaðir öfuguggar.
Á þessum tíma var ekki mikið talað um efnahag og gjaldþrot [...]
In: Animation, Veflókar, Videoverk
Night of the living dead: reanimated
Eftir að kærastinn hennar Barbra er étinn af uppvakningum í kirkjugarði, leitar hún skjóls í húsi sem er umsetið heilum saumaklúbb af hungruðum mannfleskétandi sóðaháleistum, sem þrá ekkert heitar en að læsa tönnunum í þokkafulla leggi hennar og liði. Minnir svolítið á köttinn minn.
Senan hér að ofan er framlag mitt til verkefnisins NOTLD:Reanimated. [...]
In: Animation, Veflókar, Videoverk
Jósef Spritzl
jútjúb
Íslensk slagorð með erlendum hreim
Í þetta föndur fór laugardagurinn 31. maí. Ég ét mig ekki í ómegin á meðan.
youtube
Það vex eitt blóm fyrir sunnan skítalæk
Einhverjir vilja halda því fram að sólblóm vaxi ekki í náttúrunni hér á norðurslóðum – en það er mikill misskilningur. Myndbandið tók ég á kvöldgöngu fyrir sunnan skítalæk. Kannast einhver við húsið?
Nótt í borg hinna dauðu
Á Þúskjá.
Fígúran sem lék í myndbandinu mínu Borgin Brennur hefur náð ótrúlegum vinsældum á Þúskjá fyrir tilstilli monitor.is. Hef ég því tekið ákvörðun um að hún leiki aðalhlutverk í öllum mínum myndböndum héðan í frá. Og þar sem mér dauðleiddist svo skelfilega í dag, settist ég niður við tölvuna mína fínu og bjó [...]
In: Animation, Veflókar, Videoverk
Borgin brennur
Fyrir nokkrum árum síðan lærði ég á snilldarforritið Photoshop. Það kom sér ákaflega vel á þeim tíma, þar sem mér var í nöp við fjölda fólks; sem er eitthvað annað en í dag: nýkrýndur verndari ástarinnar.
Þeir sem urðu fyrir photoshop-barðinu á mér voru meðal annarra deildarstýra á deild sem ég var að vinna [...]
In: Animation, Veflókar, Videoverk
John Denver er dauður.
Hverju mannsbarni er fullkunnugt um hversu mikill söngfugl ég er. Ég gersamlega elska að þenja á mér raddböndin og verða þá oftar en ekki söngvar um ástina fyrir valinu. Hver sem haft hefir af mér kynni veit að ég er dyggur aðvókat ástarinnar. Ég elska að elska. Ég elska að syngja. Að [...]