Archive for the ‘Israel’ Category
Hamsa
Það er lítið gaman að heita Sasson Ben Yehuda og vera fúlasti maðurinn í öllu hverfinu. Sasson þýðir nefnilega á hebresku kæti, gleði, fögnuður, en kátína var það síðasta sem Sasson kom til hugar þar sem hann sat eins og klessa fastur í hjólastól, ekki einu sinni fær um að kasta af sér vatni án [...]
Mezúza
Mezúza er ílangt lítið stykki sem fest er á dyrakarm á heimilum gyðinga. Stykkið er holt og inn í því er að finna litla bókrollu, sem á er skrifuð hebresk bæn. Bænin má ekki vera skrifuð af hvaða lassaróna sem er. Til þeirra verka er fenginn þartilgerður prýðisgyðingur, með áralanga reynslu í [...]
Hinn arabíski shuk
Fátt er eins sárgrætilegt og þegar gullin tækifæri ganga manni úr greipum. Ég persónulega hef orðið af glæsilegum viðskiptatækifærum, vegna heimskulegra hugsjóna.
Fyrir um tíu árum síðan var ég staddur á arabíska markaðnum í Jerúsalem með fyrrum ástmey minni. Arabíski markaðurinn er fullur af allskonar helvítis skrani og skrauti, sem heillar glysgjarna túrhesta. Þar [...]
Vertu vinur minn á facebook eða ég drep mig!
Í hádeginu í dag hitti ég fyrir mann, sem ég bað um að verða svokallaður vinur minn í netsamfélaginu facebook. Ég sagði honum að hefði hann ekki samþykkt að verða vinur minn á facebook, hefði ég og ekki átt annarra kosta völ en að drepa mig. Ég hefð tekið þeirri höfnun sem óyggjandi [...]
hnífastatíf
Þegar ég dvaldi út í Ísrael varð ég fyrir árás vitstola manns. Maður þessi sem að sjálfsögðu var Dani, stakk mig í bakið með eldhúshníf, þannig að það vantaði einungis fjóra millimetra upp á að hnífsoddurinn gerði gat á gollurhúsið sem umlykur kærleiksríkt hjarta mitt. Hefði bauninn sumsé sett örlítið meiri kraft í [...]
Beautiful people
Anorexía er málið.
Fólk sem var mér mjög kært og ég kynntist fyrir u.þ.b 12 árum síðan, hefur sett sig í samband við mig. Ég get þakkað þessu vefsetri fyrir, að þau fundu mig.
Í óteljandi skipti hefur mér verið hugsað til þeirra, en ekki komist eftir því hver afdrif þeirra urðu. Þau má [...]
israel ’95-’97
Ég kom við í The Manhattan Mall og hitti þar fyrir Ísraela sem var að selja Death Sea Minerals. Hann laugaði hendur mínar upp úr saltsápu. Við spjölluðum saman í dágóða stund og ég fór að rifja upp veru mína í Ísrael og hvaða áhrif landið hafði á mig. Á því tímabili [...]