Archive for the ‘Veflókar’ Category
Spítalatungumál
Þegar ég vann á spítala töluðu þeir faglærðu vísindalegt tungumál, sem mér ómenntuðum starfsmanni þótti afar heillandi. Tungumálið, sem er internasjónal, ímynda ég mér að hjúkrunarfræðingar, læknar og sjúkraliðar læri upp í Akademíu, með stóru A-i. Ég hef alla tíð heillast af akademísku fræðimáli. Framandi orð eins og penis og vagína, borið [...]
Pissa á leiði
Í tilefni af 40 ára afmælinu mínu datt mér í hug að snjallt væri að skrifa yfirlætisfullan afmælispistil um eigin þroska og yfirburði. Þess í stað, setti ég saman hóp fólks á facebook sem ég ber sérstakan kala til. Miðað við líferni eru allar líkur á að ég komi til með að lifa [...]
Eyjan
Ein áhrifaríkasta leiðin til að misþyrma sálu sinni er að lesa athugasemdir á hryllingseyjunni punktur is. Þann illa þefjandi pytt hrasa ég reglulega í og missi þá samstundis trú á samlöndum mínum og getu mannsins til að hefja sig upp úr forinni. Það þarf ekki nema eina til tvær athugasemdir til [...]
Flugdauðleiðir
Ég má til með að segja frá andskoti hressandi draumi um eftirlætis hugðarefni mitt: sjálfan dauðann. Já, rétt svona til að athuga hvort ég sé enn skriffær.
Draumurinn var um spánýtt flugfélag, sem hafði þá sérstöðu að fljúga með menn út í opinn dauðann. Vitanlega festi ég fé í miða. [...]
Ferðalagið á grafarbakkann.
Engin hugsun er jafn notaleg og sú hugsun að einn sólríkan dag muni hjartað í brjósti mér hætta að slá og ég fái að deyja. Ég veit ekki hvers vegna, en ég held að flestir ímyndi sér að sólin skíni og fuglarnir tísti á þessum degi. Það er ósköp skiljanlegt. Ef sálin á [...]
Matar æðið
Hér í Kaupmannahöfn NV hafa heimilismenn tileinkað sér fúndementalískt kólesterólskert matarræði sem fer silkihönskum um munn, maga og ristil. Hægðirnar sem fara hér í klósettið eru svo mikilfenglegar og fallegar – og trúið mér hér er mikið kúkað – að herra Kelloggs hefði veitt okkur sérstök verðlaun væri ristillinn á honum ennþá starfandi. [...]
Vaíla Veinólína
Hér er orðið ári dapurlegt um að litast og framleiðsla á tímamótahugsunum mikið til legið niðri. Hvernig stendur á því? Þessi brennandi þörf mín til að fjalla um sannleikann, eins og hann kemur mér fyrir sjónir, hefur dvínað undanfarin misseri. Ég að sama skapi fylgist lítið orðið með bloggi. Sumir halda [...]
Hitler í stuði
Þessi hreyfimynd kætir mig alveg ægilega.
Þegar manneskjan fyrnist
Á lífsleið minni hef ég fyrirhitt heila hjörð af fólki sem ég hefði helst aldrei viljað þekkja. Svonefndir viðbjóðar og drulluháleistar, sem ganga þessa jörð mér til ama og leiðinda. Þetta á sérstaklega við um skóla- og unglingsárin, þar sem ég fékk litlu eða engu um það ráðið hverja ég átti í samskiptum [...]
Svíþjóð fyrr í dag – myndband
Í dag dauðleiddist mér lífið og hefði helst bara viljað vera dauður. Til að lyfta mér á kreik skrapp ég yfir lækinn til Svíþjóðar. Allt er gott í Svíþjóð meðan Danmörk er viðbjóður. Allir voru vinalegir og fullir af fölskvalausri gleði. Ég fékk mér fair trade kaffi og ökkólógíska pönnsu [...]
“Það er valt, lífið allt”
- sagði barþjónninn í draumnum mínum um leið og hann rétti mér líterskrús af bjór sem ég smakkaði á. Mmmmmm, eða hitt þó heldur. Flatur og gruggugur líkt og bjórinn sem ég bruggaði á árunum rétt undir aldamótin. Hann var lagaður í fimmtíu lítra kút settur svo á eins til tveggja [...]
Að eilífu ungur
Það sem af er þessu ári hefur mér þótt ósköp leiðinlegt að vera til. Ég hef meira og minna verið lasinn og því frekar dapur. Hér í Danmörk djöfulsins er skítkalt, dimmt og napurlegt. Danir þurfa ekki mikið annað en að opna munninn og tala dönsku til að vera leiðinlegir. Ég [...]