Archive for 2002

Bernskubrek afstyrmisins

Fundist hefur mynd frá bernskuslóðum jólanasistasveinsins. Samkvæmt heimildum þeirra sem að til þekktu bjó umræddur skítaháleistur að ósköp venjulegu, ástríku uppeldi. Hann hélt sig mikið til heima við og hjálpaði til við heimilisstörf á milli þess sem hann stoppaði upp fugla ásamt einstaka heimilisdýri. Hann var vinsæll meðal jafningja og hafði einstakt lag á því [...]

Posted on December 15, 2002 at 23:06 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Tvídrangar

Þess ber að geta að í stað einnar tilvitnunar úr úrvalsmyndinni Donnie Darko(ein af betri myndum sem að ég hef séð það sem af er ári) hef ég sett upp 114 tilvitnanir úr sjónvarpsþáttaröðinni Tvídrangar. Þessar 114 tilvitnanir spanna pilot-inn og þátt 1-29(finale). Hvað Tvídranga varðar, þá skilst mér að það sé hægt að vera [...]

Posted on December 15, 2002 at 22:41 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Ögmundur segir hingað og ekki lengra!

Ögmundur Jónason hafði samband við George C. Scott síðdegis og bað hann um að liðsinna sér í þessum óþverramálum sem að dynja nú yfir íslensku þjóðina. Ögmundur sem ekkert aumt má sjá, gerði sér fyrstur þingmanna grein fyrir alvörunni og viðbjóðnum sem að fylgir ofstækisafstyrminu Jólasveininum. Hann hafði orð á því að hann hefði séð [...]

Posted on December 12, 2002 at 07:03 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Sæng mín er útbreydd!

Það gleður mig ósegjanlega að tilkynna ykkur sem að rata hér inn ég hef fundið fyrirtæki til að fjármagna mig og það sem að ég hef í hyggju að framkvæma í framtíðinni. Þetta fyrirtæki er hið víðfræga og sívinsæla BonziBuddy corp. staðsett í henni Ameríku. Það var snemma í morgun sem að framkvæmdastjórinn hringdi í [...]

Posted on December 7, 2002 at 19:35 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Jólasveinanasistinn talaði á Alþingi í dag.

Mörgum til mikillar furðu steig í pontu á Alþingi í dag kvikindi sem að hefur verið tíðræddur hér á heimasíðu minni. Ófétið var enginn annar en nasistinn og barnamorðinginn sá er við köllum í daglegu froðusnakki Jólasveininn. Þeir sem að fylgst hafa með herferð minni gegn þessum blóðþyrsta niðursetningi kemur ekki á óvart þau ítök [...]

Posted on December 6, 2002 at 03:02 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Nýjar staðreyndir!

Nýjar staðreyndir liggja ljósar fyrir í máli nasistans og blóðsúthellingar- kvikindisins Jólasveinsins. Myndin hér hægra megin þykir sanna að hann njóti stuðnings hjálpardjöflanna úr windows stýrikerfinu. Er hann þarna staddur með bréfaklemmunni morðóðu, galdrakarlinum blóðþyrsta og mannætuhundinum Cujo. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta setji ugg að þeim sem að til [...]

Posted on December 5, 2002 at 02:38 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

George C. Scott er búsettur hérlendis

George C. Scott sem að best er þekktur fyrir leik sinn í myndinni um generálinn herskáa Patton er búsettur hérlendis, mér og öðrum íslenskum aðdáendum til mikillar gleði og sérstakrar furðu. Fyrir mitt leyti er George C. Scott meðal bestu leikara sem að uppi hefur verið og er mér sönn ánægja að vita af honum [...]

Posted on December 4, 2002 at 06:14 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Nasistajólasveinninn var að verki

Nasistinn og mannfýlan jólasveinninn var viðstaddur Challenger “slysið.” Nýstofnuð samtök gegn Jólasveininum láta sér hvergi bregða við þessa frétt og telja sig fullfæra að sanna upp á hann önnur eins voðaverk í gegnum mannkynssöguna.

Posted on December 4, 2002 at 00:31 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Hindenburgarslysið var nasistajólasveininum að kenna.

Samkvæmt rannsóknum þykist sannast að Hindenburgarslysið sem að kom 35 grandalausum sálum á kistubotninn á sínum tíma var í raun og veru hryðjuverk framið af anti-semitíska nasistajólasveininum, það mun vera sá hinn sami og hylltur er með allskyns fíflháttarlátum um allan hinn vestræna heim.

Posted on December 3, 2002 at 20:33 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Burt með þennan ósóma

Stofnuð hafa verið sérstök samtök gegn þessum ósóma sem að við kjósum að kalla jólasveininn. Samtökin skipa ónefndir aðilar sem að hafa alið grunsemdir sínar á rökum í gegnum tíðina og eru tilbúnir að berjast í bakkafullan lækinn til að koma þessu morðóða kvikindi út úr okkar menningu. Samtökin eru á þeirri skoðun að hamfarir [...]

Posted on December 3, 2002 at 18:33 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Vinir Bill Gates

Ég bætti inn þessum möguleika í windows.

Posted on December 2, 2002 at 06:28 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Jólasveinninn er nasisti

Ég var staddur í 10/11 niður í Lækjargötu til að kaupa mér næringu, það kann að koma ykkur á óvart en ég ætla ekki að útlista það fyrir ykkur hvað ég keypti í matinn, né ætla ég að uppfræða ykkur hvernig ég steikti það sem ég keypti. Ég bendi ykkur á í fullri vinsemd að [...]

Posted on December 2, 2002 at 06:02 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar