Archive for 2003
Nú verður tekið á því
Dagur #2 USD 79,5600 79,9600.
Fyrir u.þ.b viku síðan var ég að tralla með breytu sem að reiknar út íslenskar krónur eftir gengi dollars og þá stóð hann í 73.03. Vissulega verður spennandi að sjá hvernig hann stendur sig á næstu dögum.
Upphaf þeirra þriðju gleður mig ósegjanlega, – og hlakka ég til að sjá börnum slátrað [...]
Bad day!
Svona lítur slæmur dagur út.
bíó log
Margar eðalmyndir í boði þessa daganna.
Ég stend upp og klappa fyrir Adam Sandler, en fram til þessa þá hef ég ekki þolað hann.
Myndin er Punch * Drunk Love.
Philip Seymour Hoffman bregður fyrir og er hann á leið í þann hóp karlmanna sem að ég myndi sænga hjá ef ég væri þeim megin við borðið.
Myndir með [...]
Samhengislaust og umfram allt verðlaust þvaður
Öskurapar Reykjarvíkurborgar kveða sér til hljóðs.
Glugginn er opinn og vesalingarnir fyrir utan eru opnir í alla enda.
Stríðsóp á vígvelli kynjanna, flöskur og smygluðum bjórkönnum er þeytt í gangstéttina í hita leiksins.
Að búa á laugarvegi er samt með eindæmum skemmtilegt þó að ég neyðist til að troða ‘buttplug’ í eyrun á mér til að ná værðarsvefni [...]
Mental sót
Vill svo skemmtilega til að ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að horfast í augu við gamla útgáfu af sjálfum mér.
Ég get fullvissað hvern svo sem þetta les að það var engin glæsisýn, án þess að ég reki það nánar hverju það sætir.
Í framhaldi af því!!!
Getur verið að ég sé orðinn það [...]
Gaman
Ég er ennþá svo eftir mig að ég hef ekki séð mér það fært að þrýsta niður lykli.
Enda hverjum er hagur í því að ég láti eitthvað frá mér fara.
Er þetta ekki allt jafn verðlaust?
Nema kannski þeir sem að blogga um stjórnmál, eða halda til haga dagbók barnanna.
Hvers virði er í heimi hér að halda [...]
Háraknjúkavirkjun.
Maður fær sko aldrei nóg af þessum virkjunarmálum. En mikið er gott að þurfa ekki að fara út úr húsi til að taka þátt í mótmælum. Mikið væri nú reyndar gott að þurfa aldrei að fara út úr húsi… eða…
“Be careful what you wish for mister!”
To JF.
Bad Hairday
Ég ólst upp í herbúðum sunnan og norðan við skítalæk. Herforinginn var móðir mín og tókst henni að temja í mér sómasamlega íslensku og á hún þökk fyrir.
Vissulega fylgir böggull skammrifi.
Það skilja mann tildæmis ekki allir.
Þegar ég var 18 ára eignaðist ég loksins kærustu.
Vesalings stúlkan bjó ekki að neinni íslenskukunnáttu. Málfræðileg slæmska [...]
Sometimes life sucks
Sat seinasta tímann í dag. Lokalokaverkefnið var að búa til auglýsingaklipp.
Ég og Pollockinn eins og zeranico kallar hann – vorum teymi.
Fyrir þá sem að hafa áhuga, -þá er klippið hér.
La clip
xvid codec
Þess ber að geta að klippið hefur álíka mikið skemmtanagildi og dos leikurinn hennar katrínar
kveðja Prumpuzvín
Af óbjóði og viðbjóði.
Mér til mikillar skemmtunar sá ég 25th hour í gærnótt, – nýjustu Spike Lee jónuna.
Mér finnst fátt yndislegra en að horfa einn á gæðamyndir í skugga nætur með drykkjuskarkala laugavegsins sem bakgrunnsmúsik.
Íslenskir bolar og litlar uppáklæddar gálur – öskrandi, syngjandi, skríkjandi, tístandi eða hvað það nú er sem að þau eru að gera til að [...]
Gjössu vel Longhorn, – hér er langt nef!
Ein af verri martröðum mínum og framtíðarspám.
Í heimi á leið til helvítis(enn og aftur komið að vendipunkti.)
Ef einhver hefði hug á því að pína mig til sagna um eitthvað sem að ég kynni að vita, – þá þyrfti sá hinn sami ekki að gera neitt annað en að loka mig inn í litlum klefa og [...]