Archive for December, 2004
bloggus maximus
/*
Ég hef ekki enn ákveðið hvaða stefnu ég tek með þessum skrifum mínum.
*/
Það er ekki alltaf partí í kantríbæ. Þetta kann að hljóma einkennilega en er eigi að síður óumflýjanlegur hluti þess að lifa og hrærast í þessu danisballi sem við höfum sum hver verið svo djörf að kalla líf. Það hefur reyndar orðið [...]
annar jólus
Graflax+sósa, hamborgarhryggur, steiktar kartöflur, súkkulaði rúsínur, kaffi og skeljakonfekt.
jóladagur
Kalkúnn með rjómalagaðri brúnsósu, konfekt, kaffi, eplabaka, sítrónu frómass, rjómi, belgískt súkkulaði og graflax+sósa. Allt hefur þetta fundið sér samastað í kviðnum á mér. Ég hef af þessu talsverðar áhyggjur og þá sér í lagi vegna þess að ég veit að þetta er ekki seinasta portion af þessu siðlausa ofáti.
aðfangadagskvöld
Rjóminn, súkkulaðið, hamborgarhryggurinn gómsæti, humarinn, brúnsætu kartöflurnar, ísinn og froðukaffið – allt sest þetta á lærin og rassinn. Nú þegar heim er komið tek ég til við að jafna þetta út yfir mittið með því að hrúga í mig mygluostaveislu og konfektinu sem ég var skikkaður til að taka með mér heim. Ég er [...]
jólus skrúteníus
Mikið hvað ég er viss um að þessi jól verða yndisleg. Ég held ég hafi aldrei verið jafn hamingjusamur og einmitt núna. Ég er búinn að raula jólalög í allan dag á meðan ég hef þrifið íbúðina mína hátt og lágt, horn í horn, hólf í gólf. Ég er með svo fallegt jólatré í [...]
Whitetrash gettogether
Einn viðbjóðslegasti og tilgangslausasti vefurinn sem ég hef vafrað um upp á síðkastið er án efa http://www.yafro.com/. Hann minnir mig á mynd sem ég sá ekki svo alls fyrir löngu, en man ekki nafnið á – sem er reyndar mjög sjaldgæft því ég man yfirleitt alltaf nöfn á myndum. Myndin fjallaði um vonlaust [...]
my big fat trumpster
Í næsta season af The Apprentice keppa bóklærðir á móti fólki sem hefur komist áfram í lífinu án formlegrar menntunar. Ég er fullur af tilhlökkunar og vona að þetta fyrirkomulag lukkist betur en season 2 sem var skipað alveg handónýtu fólki. Svipað því sem alið er upp í sveit hérlendis.
sushi
“A little bit of pain never hurt anybody.”
Keith Gow
alt.tv.twin-peaks
Fyrir internetsjúka mæli ég eindregið með notkun Usenet. Usenet er hundgamalt risastórt umræðukerfi. Flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi þar sem Usenet spannar flest öll áhugasvið.
Hægt er að stofna reikning frítt á http://individual.net/
Gott er að kynna sér málið frekar á http://www.faqs.org/faqs/usenet/what-is/part1/
þusumsvei
Eftirfarandi er viðbjóður:
Þessar andstyggilegu barnaauglýsingar, þar sem litlu sætu dúllí dú, krúttí krúttí smábörnin auglýsa allskonar fucking drasl út af því að það getur ekki verið neiitt annað en svaka fucking sætt.
Ég er kannski einn um að hafa eitthvað út á þetta að setja. Það má vel vera að það sé politically incorrect að [...]
Ha’ Ulam
Ég hef ákveðið að spila inn aftur gamla galleríið mitt. Ég sé enga sérstaka ástæðu til að taka fallegustu minningar fortíðar minnar og kasta þeim út í hafsauga. Það má vel vera að ég sé að taka hliðarspor með þessu athæfi en það verður þá að hafa það. Ég hef löngum verið [...]
indókína
Mér er minnistætt úr 6ta season af Sex And The City, þar sem Miranda er farin að lifa of einhæfu einsemdarlífi. Hún horfir alltaf á sömu sápuna, sækir vinnu og verslar mat í sömu chineese fast food búllunni. Hún fer að hafa það mjög svo á tilfinningunni að hún eigi sér ekkert líf [...]
The Trumpster
Eftir að hafa hakkað í mig tvær stórar skálar af poppi hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég vill að það heyrist konunglegur lúðraþytur þegar ég geng inn í herbergi. Eftir að hafa verið dyggur aðdáandi The Apprentice í tæpt ár, hef ég tekið eftir að næstum í hvert það skipti sem Trump-arinn [...]