Archive for 2005

Goodbye 2005

Þá er þetta blessaða ár að renna skeið sitt á enda. Svona byrja öll góð áramótablogg. Ég persónulega sé ekkert eftir þessu ári, ég hef vart upplifað aðra eins andstyggð. Ég hef ferðast töluvert á þessu ári í hinum og þessum tilgangi. Örlagarík ferð mín vestur um haf til hennar Ameríku [...]

Posted on December 31, 2005 at 20:33 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Þrálát hegðun

Allt það súkkulaði sem ég tek til við að hesthúsa þessa daganna, endar undantekningalaust uppi á lærunum á mér. Þetta er að mínu mati svindl og brýtur í bága við almenna lífsgleði af þeirri tegund sem ég aðhyllist. Ég er orðinn í seinni tíð sjúkur í sykur. Ef eitthvað kemur upp á [...]

Posted on December 20, 2005 at 00:40 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

The Descent

Fyrir unnendur eðal hryllingsmynda mæli ég sérstaklega með bresku myndinni The Descent. Það er ekki oft að ég kemst yfir annað eins gúmmilaði, mig minnir að seinasta ræman sem skaut mér skelk í bringu hafi verið The Ring og það mun vera ein 3 ár síðan ég sá hana. The Descent er fram úr hófi [...]

Posted on November 11, 2005 at 14:34 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Lyf gegn homminu.

Ég sé fulla ástæðu til að taka gleði mína á ný. Nú? Því þá, kann einhver að spyrja sig. Jú, í gegnum tíðina hefur það háð mér ógurlega hversu hommalegur ég er. En nú líður það undir lok, því það er komið lyf gegn þessu. Það kallast hetracil. Á þeim [...]

Posted on November 3, 2005 at 11:57 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar

Heiti Potturinn.

Það er tilboð í gangi hjá iceland express sem þeir snillingar hafa gefið nafnið “heiti potturinn”. Þar sem ég á sand af seðlum og er alltaf að græða á tilboðum, keypti ég einn miða til London 6. desember. Miðinn kostaði 3.890.- en er einungis aðra leiðina. Ég hef enga hugmynd um það [...]

Posted on October 19, 2005 at 20:22 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Þá er það komið á hreint.

You Are An Introvert!
You’re not necessarily anti-social, but you do tend to need a lot of alone time.
You tend to think before you talk, which doesn’t make you the loudest person in the room.
While you aren’t outgoing, you are a good listener – and you tend to be a loyal friend.
And you enjoy your friends [...]

Posted on October 16, 2005 at 23:42 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

General Motors

GM eins og hann er nefndur í daglegu tali er alveg sérstakt eintak af gerpi. Ég sé hann fyrir mér þar sem hann situr teyti með pabbastrákavinum sínum, þar sem hann heldur litla sjálfshyggjuræðu um það hversu vel hann sjálfur er gefinn og hversu litlan tilverurétt láglaunafólk og öryrkjar hafa. Hinn frábæri GM, [...]

Posted on September 9, 2005 at 19:03 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

tónlist

Ég hef undanfarið verið að hlusta á tvær alveg dásamlegar hjómsveitir. Sú hin fyrri er hljómsveitin tunng og kemur að því ég best veit frá Bretlandi. Sú hin síðari heitir Efterklang. Í mínum bókum til þessa hefur ekki neitt frá Danmörku verið þannig háttað að ég geti sársaukalaust lagt blessun mína yfir það. [...]

Posted on September 6, 2005 at 19:46 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

skæs unglingar

Ég viðurkenni að þessar helvítis rósir voru ekki alveg að veita mér þá gleði sem ég vonaðist til. Með öðrum orðum þá var þetta uppátæki mitt ekki nógu skæs. Þess ber að geta að “skæs” er orðatiltæki sem var mjög mikið notað á ömurlegum unglingsárum mínum, þegar ég var að reyna að [...]

Posted on September 3, 2005 at 16:31 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

rósir

Ég ákvað að fríska aðeins upp á síðuna mína. Mér persónulega finnst þetta vel til fundið, en það kann þó að vera að einhver sé á öndverðum meiði hvað það varðar. Þessar rósir bera þess merki hversu dásamleg viðhorf mín eru til lífssins þessa köldu vetrardaga. Er þetta skæs eða hvað??????
Þessi stúlka var [...]

Posted on September 2, 2005 at 18:14 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

Þaulhugsað

Ég er orðinn svo þreyttur á að sjá síðustu blogfærslu mína efst svo ég ákvað að skella þessari inn. Þessi færsla kemur einnig til með verða vitni þess að ég er ekki ennþá dauður, heldur sprellilifandi öllum nærstöddum til ama og leiðinda.

Posted on August 21, 2005 at 20:08 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

vírushernaður

Hverjum í fjárans helvíti kemur það til hugar að það sé eitthvað eftirsóknarvert að vinna við það að laxera windows tölvur. Það er ekkert eins óspennandi í heimi hér verð ég að segja. En guð sé oss næstur hvað þetta er atvinnuskapandi. Nú til dags leggur fólk að jöfnu það að vera áhugamaður [...]

Posted on August 10, 2005 at 19:22 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar