Archive for February, 2005

c

Ég er ekki frá því að það sé eitthvað við það að athuga þegar tveir stælgæjar á borð við mig og hóruna hana fröken Sigríði sitja á öldurhúsi á laugardagskvöldi önnum kafnir með ferðatölvu og kennslubók í c forritun. Þetta kann að skjóta skökku við þegar það þykir sjálfsagt að menn af okkar kalíberi, [...]

Posted on February 27, 2005 at 01:05 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Snuggling with Benjamin Corner.

Mér til sérstakrar gleði fann ég einn vefannálinn minn þýddan og endursagðan á enska tungu. Ég held að við sem tölum tungumálið getum verið sérstaklega ánægð með hversu vel íslenskan skilar sér í þessari fallegu þýðingu.
If only Icelandic literature translated as profoundly as this.

Posted on February 25, 2005 at 22:02 by siggi · Permalink · Comments Closed
In: Veflókar

runkbindindi

Nú er hráfæði bara málið. Ég sat á sóðabúllu djöfulsins, Grænum Kost um daginn þegar inn kom trúboði hráfæðis. Hann tjáði mér og hinni óforbetranlegu frú Sigríði sem er uppgjafahóra að við værum að láta oní okkur bráðdrepandi viðbjóð sem ætti eftir að skila sér í kvalarfullum dauðdaga fyrir okkur og fjölskyldu okkar. [...]

Posted on February 25, 2005 at 17:10 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar

B the hress.

Mér tókst að eiga mannleg samskipti í gær án þess að láta út úr mér einhvern viðbjóð. Það þykir furðu sæta hvað ég get verið orðljótur stundum. Ég sem er einlægur og yndislegur, uppfullur af kærleik og skilyrðislausri ást á meðbræðrum mínum. Mig minnir að það hafi verið á mánudaginn sem ég var [...]

Posted on February 24, 2005 at 10:57 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Óviðeigandi gleði.

Einkennilegt en mér til mikillar furðu varð ég uppvís að lítilsháttar gleði. Ekki samt svo mikið að hægt sé að draga mig i dilka. Bara rétt nóg til að ég brosti aðeins út í annað og hugsaði með sjálfum mér að þetta væri nú bara næstum því þolanlegt. Þetta er að sjálfsögu gersamlega á [...]

Posted on February 21, 2005 at 22:21 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Bitter Moon

Ég hef í gegnum tíðina verið aðdáandi Roman Polanski, þó svo ég hafi ekki borið mig eftir að sjá allt sem hann hefur gert. Mér minnistæðust er mynd hans Bitter Moon, sem er eina myndin sem ég hef umborið hinn viðbjóðslega Hugh Grant. Konur fengu í þessari mynd uppræsn æru gegn andstyggilegri framkomu hins [...]

Posted on February 20, 2005 at 13:51 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

amard

“Lying is the currency of the world!”
Ég veit ekki með þessa línu úr myndinni Closer. Það að ákvarða að fólk yfir höfuð segi ósatt eða snyrti til sannleikann eftir behag, er að mínu mati ósanngjarnt gagnvart þeim sem að reyna eftir fremsta megni að lifa lífinu í heiðarleika gagnvart sjálfum sér og öðru fólki.Ég [...]

Posted on February 19, 2005 at 12:58 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Allra meina bót.

Posted on February 19, 2005 at 12:57 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Sú ljóshærða.

The blonde one in Sideways was a much nicer person. Don’t you think?
Maria T.
Paper and people purges var blog sem ég fann fyrir slysni um það hversu nauðsynlegt það er að flokka fólk niður eftir því hversu miklu máli það skiptir mann. Ég hef fylgst með skrifum þessarar konu og hef fundið margt nýtilegt [...]

Posted on February 16, 2005 at 14:18 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

fyrirheit fögur

Ég hef gert smávægilegar breytingar á vefnum mínum. Ég hef reyndar einu sinni áður eytt út myndunum mínum, en af óskiljanlegum orsökum poppuðu þær upp aftur eins og eitthvað sem vill ekki deyja. Ég hinsvegar sný ekki aftur með neinar af þeim myndum sem ég hef birt hér á vef mínum. Ég [...]

Posted on February 14, 2005 at 12:34 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

sideways

Hún situr enn pikkföst í mér þessi magnaða mynd. Mér tókst að hlæja mig vitlausan yfir sársaukafyllstu atriðinum. Ég held samt sem áður að salurinn hafi ekki fylgt mér eftir í sumu af því sem mér þótti alveg sérstaklega fyndið. Uppáhaldssenan mín er án efa þar sem hann neyðist til að tala [...]

Posted on February 14, 2005 at 10:20 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Today is a X40 day

Til eftirbreytni í mannlegum samskiptum.
Ég var staddur í afgreiðslu svitaræktarinnar Laugum þegar ég varð var við mann sem ég þekkti nokkur deili á. Ég hugsaði með mér, – skildi hann hafa tekið eftir mér? Ég hef nefnilega komist að því á vísindalega máta að ef ég læt sem ég taki ekki eftir fólki þá [...]

Posted on February 11, 2005 at 11:18 by siggi · Permalink · 3 Comments
In: Veflókar