Archive for 2005
offita
Eftir allt gúmmilaðið sem ég hef látið oní mig á ferðum mínum til Hollands og Ítalíu finn ég að þvermál mitt er orðið meira en það var. Þetta er afar slæmt, þar sem ég hef í gegnum tíðina þurft að hafa talsvert fyrir því að ná af mér aukakílóum. Þessar stöðugu vangaveltur um [...]
Siciliana a Milan
Þá er förinni heitið til Mílanó. Þann 1. ágúst kem ég svo til með að angra samlanda mína aftur með andstyggilegri nærveru minni. Nú hef ég verið hér á Sikiley í mánuð og með sanni hefði ég til að byrja með talið það víst að ég gæti búið hér. Sannleikurinn er hinsvegar sá að [...]
Skandinavía
Til andskotans með Skandinavíu. – Long live the new flesh.
Ég hef aðeins verið að hlusta á band sem heitir Mew, mér til alveg sérstakrar ánægju. Ég hef til þessa ekki aflað mér frekari upplýsinga um þessa sveit. Ég hinsvegar án þess að fara þess á leit, varð þess uppvís að sveitin er frá Danmörku. [...]
comment kerfi uppfært
Ég þakka viðkomandi fyrir að setja inn myndina maria.jpg inn í berskjaldað comment kerfið sem fylgir þessum fallega vef. Myndina maria.jpg hefur umræddur (en að öllu ónefndur) hugsanlega dregið upp úr litskrúðugu einkasafni sínu ef getgátur mínar reynast réttar. Ég sá samt sem áður ástæðu til að fjarlæga athugasemdina, sem innihélt þessa fögru [...]
Grillað með George Hamilton
Þegar ég var smástrákur þá velti ég oft vöngum yfir því hvernig það væri að vera fullorðinn. Eins og ég sá heiminn þá höfðu fullorðnir allt á hreinu. Þeir brugðust alltaf rétt við og vissu nákvæmlega hvernig ætti að haga sér í hverskyns aðstæðum. Mér þótti heimur hinna fullorðnu afar hrífandi og [...]
Holland 2005
Ég bendi þeim sem eiga hagsmuna að gæta á myndaalbúmið. Í albúminu að þessu sinni tíunda ég ferð okkar Maríu Falabellu til fjarlægra landa. Ævintýri, væntingar og brostnir draumar. Ég er ekki í stöðugu stafrænu sambandi við umheiminn, en guð einn veit að ég nýti hvert það tækifæri sem gefst.
carson
Falleg er hún Carson McCullers.
“Ég hata eurovision blog!”
# Vorþunglyndi:
Fyrst ber að nefna þessa tegund af þunglyndi sem er afskaplega algeng meðal íslendinga. Vetrarhörkuþunglyndið er að baki og það orðið tímabært að taka til hendinni og gera eitthvað bæði uppbyggjandi og sérstaklega skemmtilegt. Hlaupa af sér aukakílóin, ná sér í riðil eða vaska upp, – svo eitthvað sé nefnt.
# Veit ekki hvað [...]
the good life
Ég hef haft það svo fjári fínt undanfarið að ég hef ekki fundið hjá mér neina sérstaka löngun til að þrasa og þusa. Ég geri mér þó grein fyrir því að þessi gleði endist ekki rass og það líður ekki á löngu að ég verð orðinn það óhamingjusamur að ég sé ríkulega ástæðu til [...]
Ghost Dog
Ég má til með að hefja upp raust mína og mæla með þessari mynd. Jim Jarmusch hefur löngum verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Einhverra hluta vegna hafði mér þó láðst að sjá þessa mynd. Ég man að einhvern tímann átti ég mér þann draum að reykja sígarettu með Jim Jarmusch og [...]
disclaimer
Þess ber að geta að þrátt fyrir ergelsi og almennan lífsleiða er undirritaður við hestaheilsu og uppfullur af gleði von og trú.
DHL express Iceland ehf. Do not use this service.
DHL Express bad review.
Because I know this page is widely picked up by the web crawlers I like to use the opportunity to suggest people not to use the DHL express Iceland service. Alot of people in Iceland use the internet to shop online. Mainly because Iceland is an isolated island in the [...]