Archive for March, 2006
Ég er að verða brjálaður á þessu
Nú er ég búinn að vera með viðurbjóðinslega flensu í næstum viku og finnst mér orðið mál að þessu linni. Mér finnst reyndar ágætt að þurfa ekki að mæta í vinnuna vegna veikinda en ég er gersamlega að missa mig yfir þessu. Ég brá mér þó út í dag til að kaupa mér [...]
Linda litla Blair
Ég hef reynt eftir fremsta megni undanfarna mánuði að ala sjálfan mig á kærleik og yndislegheitum. Ég hef komist að því á grýttum vegi lífs míns að það leikur gersamlega allt í höndunum á mér ef ég er léttur í lund og jákvæður. Það er óhjákvæmilega fylgifiskur þess að reyna að haga sér [...]
Með unglingabólu á nefinu.
Þetta er hún Amy Goodman eins og áður hefur komið fram. Hún er alveg prýðilegt uppátæki. Hún er stólpípumeðvituð. Við vitum það sem aðhyllumst heilsu, trefjahægðir og reglubundna hreyfingu að um leið og manneskja hefur náð stólpípumeðvitund að þá geti hún fyrst farið að tala digurbarkalega á fundi hjá félagasamtökunum. Þetta er [...]
Kvikmyndir
Það gerist æ oftar þegar
ég reyni að horfa á bíómyndir að ég endist ekki myndina á enda. Ég hugsa að þetta sé bein afleiðing þess að ég henti sjónvarpinu mínu á haugana fyrir rúmum fjórum vikum síðan. Ég hef þó einstaka sinnum verið inn á heimilum þar sem sjónvarpið er í gangi og [...]
Ástfanginn enn á ný
Það fór þó aldrei svo að ég skyldi ekki verða ástfanginn aftur og nýbúinn. Kvenkosturinn að þessu sinni er hún Amy mín Goodman. Hún er að mínu viti kynþokkafyllsta kona sem ég hef augu borið. Hún er starfar hjá útvarpsstöð sem heitir http://democracynow.org, sem berst fyrir heilbrigðum fréttaflutningi, þarna fyrir vestan Atlantshaf. Henni finnst gaman [...]
Elvis breakfast with half a glass of valium
Eins og oft á virkum dögum geng ég leið sem liggur laugaveginn í þeim tilgangi að leggja ástund á vinnu mína hjá hinu opinbera. Einn fallegan frostmorgun á leið minni, var ég með stöðutáknið mitt æpödduna skrönglandi í eyrum mér. Ég var að hlusta á Eckhart Tolle lýsa því á frískandi máta [...]
Mempiss
Undantekningalaust þegar ég flýg milli landa fer ég að hugsa um hitt og þetta sem getur farið úrskeiðis meðan á flugferðinni stendur. Ég er ekki haldinn svokallaðri Aviophobia/Aviatophobia. Ég er síður en svo hræddur í flugvél. En ég læt ímyndunarafl mitt hlaupa gersamlega með mig í gönur. Í flugtaki sé ég [...]
Baba Ghannouj uppskrift
Baba Ghannouj er mikið gúmmilaði og alveg sérstaklega einfalt að búa það til.
Það er sérstaklega gott með falafel salati og hummus. Einnig er það prýðilegt sem ídýfa með tildæmis nanó eða pítu brauð. Þetta er eitt af því sem ég borðaði töluvert af þegar ég var að skrönglast í Ísrael. Vinsæl matargerðí Ísrael [...]
Soda Stream fjárfesting
Ég festi fé í Soda Stream tæki í dag. Þetta er þess valdandi að hvað svo sem er á boðstólnum hér á fallegum Laugaveginum er kolsýrt. Ég hef nú þegar frá því að ég lauk erfiðum degi á skrifstofunni hesthúsað u.m.þ.b þremur lítrum af kolsýrðu vatni. Það er því óhætt að segja [...]
Phobia
Fólk sem þjáist af ótta/fælni gagnvart löngum orðum í rituðu máli eru greindir með
hippopotomonstrosesquippedaliophobia. Ég er þakklátur fyrir að búið sé að skilgreina þennan vanda sem hefur valdið svo ótal mörgum ábúendum þessarar jarðar óhamingju og viðurstyggð. Hefði ég vitað þetta á þeim tíma sem ég sótti barnaskóla í viðbjóðslegum Kópavoginum þá hefði [...]
Munich og utf-8 tilraun
אנשים
מטומטמים
Ég sá Munich í gær og það kom mér á óvart hversu lítið hún er fylgjandi þeirri hugsjón sem byggir Ísraelríki. Ég átti satt best að segja átti von á að Spielberg tæki einhverja fjandans afstöðu með sínu fólki, en hann gerði það ekki beint, heldur skilaði þessari mögnuðu sögu vel og skilmerkilega frá [...]
Syngjandi sæll og glaður…. træl læl læ
I was happy in the haze
of a drunken hour
But heaven knows I’m
miserable now
I was looking for a job, and then I found a job
And heaven knows I’m
miserable now
In my life
Why do I give valuable
time
To people who don’t care
if I live or die ?
Þegar ég hóf störf
hjá hinu opinbera fyrir þremur [...]