Archive for April, 2006

Berserkur

Rúnar Jensen stórvinur minn hefur bæst í hóp þeirra sem nota hið kærleiksríka og jafnframt heimilislega veflóka kerfi pymazine. Hann hefur skrifað sína fyrstu blog færslu og er hana að finna á vefslóðinni æðinslegu berserkur.com. Heiti kerfisins er samsuða orðanna python og promazin. Kerfið er skrifað í forritunartungumálinu python. Tilvist nafnsins promazin [...]

Posted on April 29, 2006 at 21:08 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Áhugaleysi

Hjá hinu opinbera þarf ég stundum að sinna alveg afskaplega miklum leiðindum. Þessi leiðindi kallast á fræðimáli einu orði nemendur og er um að ræða alveg sérstaklega óheppilega uppfinningu. Ég er stundum ranglega spurður út í hluti sem ég hef einfaldlega ekki hundsvit á. Spurningarnar hafa nánast undantekningalaust eitthvað með prentara að [...]

Posted on April 27, 2006 at 22:29 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Beautiful people

The beautiful human beings that I am addressing in this entry, have not all mastered the sophisticated language of the ancient northern drunks. During the past days in Memphis TN in the superb company of my dear friend Rúnar and my new favorite Emme that I choose to label as the southern fairy, – I [...]

Posted on April 26, 2006 at 21:36 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

iJunk

Ég er alveg sérstaklega óánægður með þessa viðurstyggð sem gengur undir nafninu iPod. Það vekur ennfremur furðu mína hversu ægilega fínt og flott það þykir að láta sjá sig með iPod. Það er engu líkara en það sé orðið að einhverjum trúarbrögðum, hvaða spilara manneskja notar til að spila dægurlög. Þetta er meira að [...]

Posted on April 24, 2006 at 21:24 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

toxicity

Morgunmaturinn þennan morguninn samanstóð af stökkbreyttu nautabuffi steiktu upp úr svínafitu. Eggjahræringur búinn til úr eggjum, úr hænum sem éta sínar eigin hægðir í bland við verksmiðjuframleidda loðnu. Brauð ristað í djúpsteikingarpotti. Lak af því kopparfeitin. Efna- og litarbætt sulta. Erfðabreyttur appelsínudjús. Eftir fyrstu tvo bitana fann ég hvernig slæmskan [...]

Posted on April 21, 2006 at 19:52 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Gleðilegt Sumar

Kæru íslendingar! Gleðilegt sumar og farsæld í hita og þunga komandi daga. Ég þakka ómetanlegan hlýhug og stuðning í tengslum við nýja stefnu í matarræði sem ég kýs að kalla á framandi tungu obesity. Talandi um obesity, þá hef ég orðið miklu minna var við fitubollur hérna í suðrinu, en ég átti [...]

Posted on April 20, 2006 at 14:08 by siggi · Permalink · 10 Comments
In: Veflókar

Siggi fallinn

Jæja, fína og flotta heilsugúmmilaðimataræðið mitt er farið til andskotans. Ég er ekki búinn að háma í mig svínakjöt einu sinni, heldur í tvígang. Ég verð að viðurkenna að ég fagna því glæpsamlega að bragða á einhverju öðru en því sem ég hef rennt svo mjúklega niður undanfarna þrjá mánuði. Ég uni [...]

Posted on April 18, 2006 at 15:48 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

U and S of the A day

Ég var ginntur á árlegan fund hjá félagasamtökunum. Ég hef aldrei áður farið á þennan fund og verð að viðurkenna að ég hafði nokkuð gaman af. Ég vill að gefnu tilefni hafa orð á því að ég hef ekki í hyggju að skreyta fleiri samkomur með nístandi nærveru minni. Ég hef átt [...]

Posted on April 15, 2006 at 02:00 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Árleg ferð mín til Brandararíkjanna

Það er um 27 °C hiti í Memphis og glampandi sól. Það vill nefnilega svo skemmtilega til að ferð mín þangað hefst einmitt næstkomandi laugardag. Ég verð að játa það upp á mig að ég kann mun betur við mig hlýindum, heldur en í óútreiknanlegri veðráttu okkar Íslendinga. Í kulda og trekk er ég [...]

Posted on April 12, 2006 at 23:31 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Tæknimál

Ég þoli illa að sitja vinnufundi. Ég sat einn í dag og mér tókst alveg án þess að ætla mér það að vera alveg einstaklega leiðinlegur. Það var mér bara svo eðlislægt að vera með leiðindi að ég þurfti nánda nærri ekkert að hafa fyrir því. Ég man að þegar ég vann á [...]

Posted on April 10, 2006 at 22:20 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Dyraverðir

Ég þoli ekki að geta ekki brugðið mér út úr húsi, án þess að hitta einhvern sem ég þekki eða kannast við. Það ber ekki að skilja það sem svo að ég þekki einhvern aragrúa af fólki. Það er þó þannig að þegar maður býr á jafn einangruðum stað og í henni Reykjavík, þá [...]

Posted on April 10, 2006 at 00:09 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Hopp og Hí

Það er ekkert leyndarmál þó svo ég sé ekki síröflandi um mitt fyrra líferni, að ég átti eilitlum erfiðleikum með ákveðnar tegundir lyfja sem ég mér algerlega að óvörum gleypti í ótæpilegu magni. Ég dreg ekki dul á það, en sárasjaldan nenni ég að tala um þetta. Það þýðir þó ekki það, að ég [...]

Posted on April 8, 2006 at 12:07 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar