Archive for April, 2006
Mistök dagsins
Í kvöld laumaðist ég út úr húsi, sem ég reyndar geri ógjarnan. Af þessu tilefni fór ég með druslunni henni fröken Sigríði og hinum glæsilega unga herramanni Zeranico í bíóhús að sjá prýðismyndina V for Vendetta. Zeranico var afskaplega vel til hafður, íklæddur sjakkett og bol sem mér fannst alveg sérstaklega eitthvað 101. [...]
This Divided State
Í tilefni þess að ég er að fara til U and S of the A, ekki á næsta laugardag heldur þarnæsta horfði ég á heimildarmyndina This Divided State sem gerist í mormónaríkinu Utah. Myndin gerist fyrir forsetakosningarnar í samfélagi þar sem 75% ábúendur eru mormónar og pólitískt hlutfall eru 12 repúbblar á móti 1 frjálslyndum. [...]
Deepak Chopra
Ég hafði gott eitt í hyggju er ég lagði af stað til læknisins, en það var eins og við manninn mælt að um leið og ég hóf samtal okkar sá ég mér ekki annað fært en að tilkynna honum það að ég hefði enga trú á stéttinni. Ég get ekki mælt með þessari nálgun [...]
10 dagar í Memphis
12 dagar í viðurstyggilegum veikindum og 10 dagar í ferð mína til Memphis. Það er ekki laust við að ég sé gráti nær af sorg yfir þessum veikindum sem eru nú farin að menga þá hugarró sem ég bý við að öllu jöfnu. Ég hef ekki prufað að garga, en ég hef heyrt [...]
Húsið á sléttunni
Þá er mál til komið að verða sér út um öll season af Húsinu á sléttunni. Þetta sjónvarpsefni ólst ég upp með og ekki hægt að neita því að ég hafi orðið að betri manni fyrir vikið. Húsið á sléttunni telur 8 season sem erum u.þ.b. 160 klukkustundir af hreinræktaðri gamaldags gúddí gúddí góðmennsku. [...]
Jazz eða Blues
Það eru reginmistök að draga þá ályktun að ef einhver kann að meta Billie Holiday, hafi sá hinn sami gaman að blús. Billie Holiday stendur alveg ein og sér hvað skilgreiningu snertir. Uppáhaldslögin mín að þessu sinni eru án efa lögin Strange fruit og Nice work if you can get it sem [...]
Nef frá nebba læknar kvebba
Ég hef undanfarna viku í veikindum mínum endurskrifað þetta blog sustem. Fyrir þá sem hafa gaman af tæknimáli þá er þessi vefur forritaður í Python. Hann var og hefur lengst af verið skrifaður í PHP, en nú er ég kominn á þá skoðun að það sé ömurlegt og þessvegna skuli allt sem snýr [...]