Archive for May, 2006

jiddu

Mér kom til hugar einstaklingur einn sem ég hef átt samskipti við og í sömu andrá varð ég heltekin af gremju og viðbjóði af áður óþekktum uppruna. Það skal undrun minni sæta að enn þann daginn í dag er ég ekki orðinn allskostar gallalaus. Ég stóð í þeirri meiningu að þetta væri allt [...]

Posted on May 31, 2006 at 00:07 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Syngja og dansa

Í fyrirtaks veðrinu á sunnudaginn, fór ég leið sem liggur niður í Öskjuhlíð. Ég fann mér laut, þar sem ég flatmagaði og hlustaði á fuglana tísta. Mér þótti ég komast í tengsl við náttúru og mína innri kirkju, eins hommalega og það nú hljómar. Mér varð það á fyrr í dag að tíunda [...]

Posted on May 29, 2006 at 22:51 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Hin ofmetna hamingja

Þessi veflókur er mér að skapi. Ég er farinn að hallast að því að hjörtu okkar Rúnars slái mjög svo í takt.
—————————
Ég ákvað snemma í dag að homma vefinn minn aðeins upp og gera hann appelsínugulan. Ég gerði þetta meðan ég drakk morgunkaffið mitt. Þegar ég hafði lokið áætlunarverki mínu lagðist ég [...]

Posted on May 26, 2006 at 00:11 by siggi · Permalink · 4 Comments
In: Veflókar

Skínandi

Það kann að skjóta skökku við að maður jafn andlega þenkjandi og ég skuli bölva, ragna, þusa og þrasa yfir þessu blessaða sumarveðri sem yljar okkur landsmönnum um hjartarætur þessa daganna. Mér er síður en svo skemmt verð ég að segja. Ég á bágt með að trúa því að einhver sé orðinn það [...]

Posted on May 22, 2006 at 22:17 by siggi · Permalink · 8 Comments
In: Veflókar

Condolezza Hrís

Tímabundin tilvistarkreppa sem staðið hefur yfir í 35 ár. Ég tel að þessi setning lýsi lífi mínu með mikilli prýði. Bráðaþunglyndi helltist yfir mig þessa helgi. Bráðaþunglyndi er alveg sérstakt afbrigði af þunglyndi sem er jafn áreiðanlegt og íslenskt veðurfar. Talandi um íslenskt veðurfar, þá snjóaði í höfuðborginni. Það er [...]

Posted on May 21, 2006 at 23:55 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

United 93

United 93 er enginn subbubjóður. Fyrst þegar ég vissi að þessi mynd væri til, hélt ég að þarna væri á ferðinni Hollywood ógeðsvella um atburði 11. september 2001. Því fer víðsfjarri og kann skýringin að vera sú að leikstjóri myndarinnar er breskur. Samtöl og samskipti eru á eðlilegum nótum. Þá á [...]

Posted on May 21, 2006 at 02:27 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Guð er óður

Jæja, þá er bara kominn háttatími. Hver hefði séð þetta fyrir. Mig hefði aldrei órað fyrir þessu þegar ég vaknaði í morgun. Ég held athöfnin að sofa, sé svo gott sem ein af mínum uppáhaldsathöfnum. Mér er því spurn hvers vegna ég bý hér á Laugarveginum, með tilliti til þess að [...]

Posted on May 20, 2006 at 00:23 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar

Hann er enginn viðbjóður

Fyrir tilstilli mikils meistara naut ég þess að hlusta á Joanna Newsome í kvöld. Alveg sérstaklega ánægjulegt. Hún er vopnuð englarödd og ekki er hægt að segja að útlitið kasti skugga á velgengni hennar, því hún er alveg gullfalleg, ásamt því að vera framúrskínandi krúsídúlla. Nú væri gaman að fá að sjá [...]

Posted on May 18, 2006 at 23:55 by siggi · Permalink · 5 Comments
In: Veflókar

Grouphug

Hópkynlífsrúta samfylkingarinnar er eitthvað með því andstyggilegra sem ég hef augum borið. Ég hef verið á nokkrum stöðum í borginni, þar sem þessari vibbarútu hefur verið lagt. Síðast sá ég hana á Sæbrautinni. Þetta er algert ógeð. Tveggja hæða strætisvagni hefur verið plastaður með hvítri filmu og á hana límdir forystusauðir [...]

Posted on May 17, 2006 at 00:14 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Hammari

Rúnar Jensen er hvorki aukvisi né eftirbátur. Hann er tildæmis ekki viðurstyggð eins og hann ______________ svo ekki sé talað um ___________, sem er algert ógeð. Hann er þvert á móti alveg sérstakt eintak af krúsídúllu. Rúnari er margt til listanna lagt. Hann leggur af mikilli alúð stund á garðyrkju. Er [...]

Posted on May 13, 2006 at 22:30 by siggi · Permalink · One Comment
In: Veflókar

Transamerica

Um þessar mundir lifi ég fátæku félagslífi. Ég er þó sæll og ánægður eins og ég er þekktur fyrir um víða veröld. Af þessum orsökum tók ég til við kvikmyndagláp á þessu prýðilega föstudagskvöldi. Ég horfði á myndina Transamerica og vill ég mæla ríkulega með henni. Myndin segir sögu manns sem bíður [...]

Posted on May 13, 2006 at 01:40 by siggi · Permalink · 2 Comments
In: Veflókar

Á topp tíu yfir vibbaklysjur

Ég skipti á rúminu mínu. Ég lét ekki þar við sitja heldur tók ég mig til og hengdi sængina mína út um gluggann og lét hana hanga þar megnið af kvöldinu. Núna, ligg ég undir sænginni sæll og glaður. Hún er fersk og frískandi. Óhjákvæmilega kemur upp í huga mér hversu [...]

Posted on May 11, 2006 at 22:30 by siggi · Permalink · 6 Comments
In: Veflókar